<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur

1. desember 

Það er semsagt fullveldisdagur okkar Íslendinga á morgun og ég þarf að mæta í vinnuna mína bara eins og hvern annan dag.... var ekki alltaf frí 1. des??? Eða voru það bara kennarar sem fengu þann munað...

En annaðkvöld er árshátíð MA og get ég ekki annað en hugsað með hryllingi til borðhaldsins árið sem ég var í fjórða bekk. Mér finnst rosalega flott að halda í þá hefð að allir fjórðubekkingar mæti í þjóðbúningnum/ hátíðarbúning/ skrautbúning/ upphlut (uppstúf??) á árshátíðina. En þvílíkt og annað eins helvíti að þurfa að klæðast þessu.... aumingja konur í gamladaga sem þurftu að ganga í þessu á hverjum degi. Það tók held ég 3 klukkutíma að koma mér í þetta á sínum tíma.
Það voru milljón hankar á pilsinu sem þurfti að festa við vestið og svo þurfti að þræða einhverja gullkeðju sikksakk framaná til að halda vestinu saman.... undir var ég í hvítri (mjjjjjööööggg þunnri) skyrtu og ætlast var til þess að konur væru virkilega barmgóðar og fylltu útí vestið... en ekki ég og þess vegna varð þetta allt hálf skakkt og asnalegt. Til að toppa þetta var ég svo með einhverja skrautlega svuntu utanyfir pilsið.
Jæja, mamma og amma voru í því að þræða, hengja og sauma þennan búning utaná mig. Þegar ég hélt að þetta gæti ekki versnað og ég gæti ekki litið hálfvitalegri út þá var þessari skotthúfu komið fyrir á hausnum á mér.... jesús. Svo var okkur safnað saman í Höllinni og látin labba inní salinn svo aðrir árshátíðargestir gæti skoðað okkur og hlegið.....
Borðhaldið var slæmt, í hvert skipti sem ég hreyfði mig eitthvað tróðst þetta vesti einhvernvegin inní rifbeinin og því var það eina í stöðunni að sitja bein í baki með innsoginn maga. Var ekki lengi að hendast heim og skipta um föt áður en ballið byrjaði..... voru ekki margir sem tóku þátt í þeirri athöfn heldur létu hafa sig að fíbbli langt frameftir nóttu.

Góða skemmtun á morgun krakkar :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?