<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur

1. desember 

Það er semsagt fullveldisdagur okkar Íslendinga á morgun og ég þarf að mæta í vinnuna mína bara eins og hvern annan dag.... var ekki alltaf frí 1. des??? Eða voru það bara kennarar sem fengu þann munað...

En annaðkvöld er árshátíð MA og get ég ekki annað en hugsað með hryllingi til borðhaldsins árið sem ég var í fjórða bekk. Mér finnst rosalega flott að halda í þá hefð að allir fjórðubekkingar mæti í þjóðbúningnum/ hátíðarbúning/ skrautbúning/ upphlut (uppstúf??) á árshátíðina. En þvílíkt og annað eins helvíti að þurfa að klæðast þessu.... aumingja konur í gamladaga sem þurftu að ganga í þessu á hverjum degi. Það tók held ég 3 klukkutíma að koma mér í þetta á sínum tíma.
Það voru milljón hankar á pilsinu sem þurfti að festa við vestið og svo þurfti að þræða einhverja gullkeðju sikksakk framaná til að halda vestinu saman.... undir var ég í hvítri (mjjjjjööööggg þunnri) skyrtu og ætlast var til þess að konur væru virkilega barmgóðar og fylltu útí vestið... en ekki ég og þess vegna varð þetta allt hálf skakkt og asnalegt. Til að toppa þetta var ég svo með einhverja skrautlega svuntu utanyfir pilsið.
Jæja, mamma og amma voru í því að þræða, hengja og sauma þennan búning utaná mig. Þegar ég hélt að þetta gæti ekki versnað og ég gæti ekki litið hálfvitalegri út þá var þessari skotthúfu komið fyrir á hausnum á mér.... jesús. Svo var okkur safnað saman í Höllinni og látin labba inní salinn svo aðrir árshátíðargestir gæti skoðað okkur og hlegið.....
Borðhaldið var slæmt, í hvert skipti sem ég hreyfði mig eitthvað tróðst þetta vesti einhvernvegin inní rifbeinin og því var það eina í stöðunni að sitja bein í baki með innsoginn maga. Var ekki lengi að hendast heim og skipta um föt áður en ballið byrjaði..... voru ekki margir sem tóku þátt í þeirri athöfn heldur létu hafa sig að fíbbli langt frameftir nóttu.

Góða skemmtun á morgun krakkar :-)

þriðjudagur

Jóla.....??? 

Held að ég vakni ekki almennilega á morgnana fyrr en um 5 tímum eftir að ég fer á fætur. Sama hvað ég er búin að sofa mikið um nóttina þá á ég svo erfitt með að fara undan sænginni.... er alveg ótrúlega fjölhæf svona sofandi og næ einhvernvegin að hendast í einhver föt, setja teygju í úfið hárið, skella mér í úlpu, í strigaskóna og út.... og yfirleitt labba ég beint í poll eða snjóskafl þannig að sokkarnir mínir verða rennandi blautir! Var alveg einstaklega meðvituð um hvað ég var að gera í morgun þegar ég leit út um gluggann og sá að það var komin hláka og pínu rigning. Klæddi mig í ökklasokka og stigaskó og hélt út.... ætla ekki að segja ykkur hvernig kulda- og bleytutilfinningin er!

Annars er ég bara með flakandi magasár (verra en Binni eftir Slóveníuferðina)... komið með hugmyndir hvað ég get gefið Óla í jólagjöf.

laugardagur

Flugvallasögur 

Mér líður eins og vændiskonu..... flugvallarhóran!! Er búin að fara alltof oft útá völl síðustu vikur.

En ég sat á vellinum í dágóðan tíma á fimmtudaginn, var að sækja Óla og vélinni seinkaði eitthvað. Eftir að hafa beðið ein í biðslanum í svona 2 mínútur labba inn tveir jakkafataklæddir gaurar.... agalega stórir kallar, allavega lifði annar þeirra í slíkri sjálfsblekkingu, hinn var frekar casual. Þar sem það er ekkert lesefni á flugvellinum (nema að sjálfsögðu skjáauglýsingarnar á Aksjón) ákvað ég að fylgjast aðeins með þessum köllum. Þeir byrjuðu að ræða um einhvern afskaplega merkilegan fund sem þeir höfðu verið á og þessi "ofursvali" var rosa fjölhæfur því hann gat ekki bara talað við manninn heldur líka haldið fyrir okkur í biðsalnum smá tískusýningu á flottu jakkafötunum sínum með alls konar snúningum og líka fiktað óeðlilega mikið í flotta símanum sínum. Eftir smá fundarumræður, tískusýningu og símafikt labbar einhver bóndadurgur uppað þeim og fer að tala við þennan frekar casual gaur. "Ofurtöffarinn" var nú allt of svalur til að eyða orðum í gamlan mann þannig að hann ákvað að setja upp grand tískusýningu fyrir okkur, setur símann uppað eyranu og byrjar að labba þvert yfir biðsalinn.... fram og til baka, aftur og aftur! Hann sagði ekki orð í símann heldur labbaði um með smá áhyggjusvip á andlitinu og annað slagið setti hann höndina undir hökuna og kinkaði kolli þungur á brún..... vá hvað þetta var glatað.
Svo loksins lendir vélin og maðurinn getur lagt símann frá sér.... Þorgerður Katrín kemur inní salinn, heilsar jakkafatagaurunum og þeir nema hana á brott. Ferlega heppnir að fá að taka á móti menntó maður!


Við svoleiðis pakksödd og þreytt á jólahlaðborði.... enda klukkan komin framyfir miðnætti og löngu kominn háttatími á Hrafnistu.

miðvikudagur

Grillveisla 

Þar sem ég er orðin svo ógeðslega leiðinlegur bloggari hef ég ákveðið að setja bara tengil yfir á síðuna hans Brjánsa sem er að meika það í Ameríku..... fyndnasta blogg sem ég hef nokkurntíman lesið, njótið :-)

mánudagur

Íkveikja 

Helgin fór nú ekki alveg eins og ég hélt en hún var nú samt ágæt.... var reynt að kveikja í okkur á laugardagskvöldið. Greinilega orðin svo ógeðslega leiðinleg að það er allt reynt til að fá hreyfingu á blóðið... heppnaðist nú ekki betur en svo að við vorum ekki heima og það var kveikt í einhverjum blaðakassa í forstofunni þannig að eldurinn náði ekki uppá 5. hæð.... kemur!!

Er kannski alveg óendanlega treg en komst að því í síðustu viku að X-ið er enn á Akureyri..... þvílík sæla!!

föstudagur

Hollusta 

Skrapp í Hagkaup um daginn og ákvað að nú væri kominn tími til að byrja aftur á að taka lýsi.... hef ekki smakkað þetta í nokkur ár en í minningunni er þetta ekkert svo rosalega ógeðslegt. Verslaði eina flösku og um leið og ég kom heim opnaði ég kassann til að kíkja á innihaldið.... ekki veit ég hvort maður fegrar minningarnar en ég hélt að lýsi væri á litin eins og frekar dökkt piss, tært en þykkt. Innihaldið í flöskunni er eitthvað ljós gult, ógeðslega þykkt og kekkjótt.... fékk ógeðishroll við það eitt að horfa á flöskuna og ekki veit ég hvernig ég mun bregðast við að finna lyktina af þessu... svo ég tali nú ekki um bragðið!!!

Yndislegt veður úti.... allt á kafi í snjó, mikið frost og sólin er eitthvað að reyna að brjótast fram!! Besti í heimi væri ef þetta myndi bara haldast svona fram í apríl :-) Helgin framundan... ætla að leika mér í snjónum, hita kakó, baka pönnukökur og hafa það kósý undir teppi!!

Góða helgi :-)

miðvikudagur

Allt er nú til 

Edduverðlaunin..... ætli fólk sé frá sér numið af kæti að vinna til slíkra verðlauna?? Framleiddar kannski 2 kvikmyndir á ári og svo er spurningin hvor skyldi nú vinna, hvor aðalleikaranna hreppir Edduna? Allir leikarar landsins safnast saman í sínu fínasta pússi og spenningurinn alveg að fara með liðið. Gríman er líka svona..... give me a brake! Allt í góðu að halda svona hátíðir en þá ætti líka að halda þær á svona þriggja ára fresti til að hafa smá spennu í þessu.....

... já og svo er ”langþráð” Papaball í Sjallanum um helgina. Enda örugglega komnar 3 vikur síðan þeir voru þar síðast!!

þriðjudagur

All you need is love..... 

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi var haldin á fimmtudaginn í síðustu viku.... aðra eins samkomu hef ég aldrei komið á og er fyllibyttan ég eins og 5 ára barn við hliðina á þessu liði.
Byrjuðum á því að hittast á Blönduósi og skelltum í okkur nokkrum skotum... næst var það rúntur um Vatnsdalinn með hinum ýmsu bjór, skot og rauðvínsstoppum. Koníaksflaskan var látin ganga um rútuna og var sérstaklega vel passað uppá að gædinn fengi nóg. Hann var semsagt rúmlega 60 ára gamall kall með skemmtisögur á færibandi og eftir því sem leið á daginn urðu sögurnar lengri og ruglingslegri. Jæja, við skoðuðum Þingeyrarkirkju (eini staðurinn þar sem ekkert áfengi var haft við hönd) og nýja þjónustuhúsið þar (bættum drykkjarleysið upp inní því húsi) og var síðasta stoppið Blönduvirkjun.... það minnti mig á gott Landsbankapartý með rauðvíni, hvítvíni, bjór og endalausum snittum. Þarna náði gædinn að toppa ferðina með því að kveikja í sjálfum sér!! Já nælonjakki með flísi inní fuðrar ansi hratt upp, hahahaha!!
OK, matur og skemmtidagskrá í Kántrýbæ þar sem Hallbjörn sjálfur lét meira að segja sjá sig..... útþaninn og gamall. Sá reyndar fram á ekkert alltof skemmtilegt borðhald þar sem okkur var raðað niður.... Kata sett á borð með formanni Ferðamálaráðs, formanni Markaðsskrifstofunnar, aðstoðarmanni samgönguráðherra (gaman að hitta heilann á bakvið Sturlu), formanni Ferðamálasamtaka Íslands, bæjarstjóra Blönduóss og hennar manni.... þvílík partýdýr hér á ferð!! En það rættist heldur betur úr þessu og ég skemmti mér ljómandi vel.
Uppúr miðnætti var dagskráin að líða undir lok og ég held að ég hafi líka verið á mínum síðustu orkudropum þannig að ég húkkaði mér far heim til Akureyrar.... þráði að sofa í mínu rúmi með strákunum mínum.

Núna er ég bara ofurtöffari á strigaskóm vaðandi snjóskafla uppað hnjám.....

föstudagur

Já, nokkuð hressandi ;-) 


þriðjudagur

Rasistinn ég enn eina ferðina! 

Jahérna, er ekki frá því að ég sé á vitlausri hillu í lífinu.... hefði átt að gerast íslenskufræðingur, þá myndu allir tala eins og ég vil!! OK, kannski ekki alveg en þessa dagana er ég að heyra svo mikið af fáránlegum orðum og setningum sem ég vil meina að séu bara algjört bull og eigi sér engan tilverurétt í þessu samfélagi. Er búin að böggast mikið yfir "að sofa í hausinn á sér" og "pissa í sig".... enginn heilvita maður talar svona. Var svo að horfa á sjónvarpið þegar það kemur auglýsing frá Dressman..... ”nú er hægt að fá þrennar skyrtur fyrir tvennar!!” Guð minn góður. Eru bara illa þroskaheftir einstaklingar sem eru að búa þessar auglýsingar til?? Ég bara trúi ekki að þetta hafi sloppið í gegn og sé auglýst svona..... orðið skyrta er eintöluorð og því segir maður ”þrjár skyrtur fyrir tvær” en til dæmis er orðið buxur fleirtöluorð og því segir maður ”þrennar buxur fyrir tvennar”.... sjæse. Maður segir ekki einar skyrta!!

Já og svo vil ég bara koma því á framfæri að ég er alls ekki pólitísk, hef bara mjög ákveðnar skoðanir á hlutum en ég myndi klárlega kjósa Frjálslyndaflokkinn ef ég gæti..... rasistahugmyndirnar mínar myndu passa vel þar inn :-) Takmarkanir á innflytjendur

mánudagur

Annað bögg!! 

... að pissa í sig!!! æi koma svoooooo. Gjörsamlega fáránlegt, hvernig getur maður pissað í sig... inní sig???..... maður pissar á sig!!

Hef annars komist að því að hægri hluti hökunnar á mér er fínasta gróðrastöð fyrir ljótar bólur.... er greinilega að líða fyrir það núna að hafa sloppið við unglingabólurnar!!

miðvikudagur

Æi maður 

OK, eins og ég hef áður komið inná þá les ég annarra manna ömurlegu blogg og það er eitt sem ég sé allt of oft og ég bara skil ekki hvaðan er komið.... hvað þá hvað það þýðir; "Núna ætla ég að fara að sofa/lúlla í hausinn á mér"!!!???? SOFA Í HAUSINN????? Þýðir það að fara að sofa? Vá hvað ég þoli ekki að sjá þetta..... þetta meikar svo engann sens!!

Er annars að fara enn eina ferðina suður á morgun á einhverja fyrirlestra..... tveir heilir dagar frá morgni fram á kvöld. Úffff, átti nú í mesta basli við að halda athyglinni í tímum í HA þannig að það er spurning hvernig þetta mun enda hjá mér.... verst að það er engin Harpa og engin Stefanía til að bögga.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?