<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

Oj bara 

Stundum fer ég maraþon blogghring og skoða allar mögulegar og ómögulegar síður hjá hinum og þessum og það merkilega er að annað hvert blogg sem ég les byrjar á sömu setningunni en í mis góðri útfærslu..... ”vá hvað ég er ekki að standa mig í þessu bloggi, hef ekkert skemmtilegt að blogga um og nenni þessu varla lengur en hér kemur samt færsla bara fyrir ykkur!” og svo kemur einhver sú leiðinlegasta og þurrasta upptalning sem ég hef nokkurntíman á ævi minni lesið á daglegu lífi einstaklingsins.... já og svo endar þessi ömurlega færsla á: "allir að kommenta takk!!" Alveg ömurlegt, kommenta á hvað?.... "Hey, þú gleymdir að skrifa hvað þú fékkst þér að drekka með hádegismatnum"! Vá hvað eru fá blogg eftir sem ég nenni að lesa, sorglegt!

En gærdagurinn var bara eins og venjulegur dagur, ekkert merkilegur. Fór í vinnuna en ákvað að sleppa hádegismatnum til að geta hætt fyrr en svo var bara svo mikið að gera að ég var að vinna alveg til fjögur. Talaði við fullt af allskonar fólki, skipulagði uppskeruhátíð og fund á fimmtudaginn. Loksins þegar dagurinn var búinn kom Óli og sótti mig og Elvar Mána og við fórum öll saman uppí Drekagil. Óli skrapp aðeins út en á meðan var ég heima að leika við Elvar og horfa á teiknimyndir, ferlega huggulegt. Svo var það bara þetta venjulega, fara í sturtu og borða kvöldmat.......
**OK, þarf að æla úr leiðindum..... og hér kemur bissukúlan beint í hausinn á mér.... PLAFFF**

Allir að kommenta!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?