<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

Mánudagsmorgun 

Óli vann ferð um daginn til Costa de sol..... fyrir einn!! Ákváðum að redda öðrum miða og ég skellti mér með honum. Eitthvað var þó sætaröðunin í flugvélinni undarleg... við í sætum 21A&B en það var ekkert sæti í 21A og þurti ég því að sitja á gólfinu. Farið var yfir öryggisatriðin og þar sem við vorum við neyðarútgang má ekkert vera á gólfinu við flugtak og lendingu og var ég því geymd í farangursgeymslunni fyrir ofan sætið á meðan.
Komumst á áfangastað og redduðum okkur leigubíl á hótelið.... leigubílsstjóri dauðans þar á ferð og hikaði hann ekkert við að keyra á gangstéttunum, sennilega til að slá sitt eigið tímamet frá flugvellinum og á hótelið.
Hótelið var snilld (hér þarf að koma ný skilgreining á orðinu snilld).... baðherbergið stórt og gott með risa hornbaðkari (nei það er ekki satt), stórir gluggar með fallegu útsýni (það er ekki heldur satt), notarlegt rúm og allt svo hreint og snyrtilegt (ansi mikil lýgi hér á ferð). Dögunum eyddum við svo í búðarráp, út að borða, leikhús, sýnisferðir um staðinn og lentum meira að segja á múslimahátíð.... mikil upplifun þar sem einhver dúddi flutti gjörning uppá risa stóru sviði. Hvatti svo alla til að fara inná klósett til að þvo sér um hendurnar áður en það færi að biðja.... ekki mikið um hryðjuverkaárásir þennan daginn! (þetta er allt satt).
Við versluðum ekki neitt handa okkur sjálfum...... EKKERT (já þetta er ekki lýgi)!! Það var algjört helvíti að labba inní búðirnar þar sem það var svo mikið af fólki allsstaðar og öskrandi börnum. Við öskruðum bara á móti og hlupum út..... eyddum samt alveg nóg af pening í allskonar skemmtanir og þessi ferð heppnaðist alveg ofboðslega vel :-)

Rosalega var svo gott að lenda á Akureyri.... úrvalið í fríhöfninni var það mesta sem ég hef séð lengi og ætlaði ég aldrei að komast út.... 2 tegundir af kremi, 5 tegundir af ilmvatni (tvær kalla og þrjár konu), 10 geisladiskar (meða annars Þessi þungu högg með Sálinni!!), 5 tegundir af tyggjói sem allir eru löngu hættir að kaupa.... sennilega afgangur úr herstöðinni (rautt, blátt, grænt, gult, silfrað með gulum stöfum og venjulegt silfrað), smá M&M hér og þar og fullt af áfengi og sígó. Ég kippti einni Campari og silfruðu tyggjói með mér út úr fríhöfninni, sótti töskurnar og var fyrst út úr flugstöðinni..... tók ekki nema 10 mínútur!!

Næst er það Ameríka!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?