<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

Kettir 

Ég skil ekki af hverju þessir aðilar sem eru í bæjarstjórn opna ekki aðeins augun og byrja að ræða um hluti sem skipta bæinn máli. Hætta að vera með einhverjar út úr kortinu hugmyndir og reyna að skapa einhver störf fyrir þetta háskólamenntaða lið sem er að útskrifast úr skólanum hér. Þýðir ekkert að vera voða montin af því að hafa háskóla sem fullt af fólki sækir ef það er ekki hægt að halda þessu fólki í bænum eftir útskrift....

En jæja.... það sem mér finnst að ætti að taka til umræðu í næsta kaffitíma er kattarhald. Það á að banna lausa ketti í bænum (best væri að banna þessi dýr alfarið í bæjum enda eiga þau bara að vera í sveit en það myndi aldrei nokkurntíman ganga upp).
Þessi dýr eru veiðandi fugla og mýs, strjúka sér svo uppvið mann og ætlast til þess að maður klappi þeim... löðrandi í allskonar ógeði. Svo er þetta mígandi og skítandi í sandkassa þar sem börn eru að leika sér og oftar en ekki borða krakkarnir sandinn. Það ógeðslegasta af öllu er þegar þessi kvikindi hoppa innum næsta glugga sem þau sjá... skiptir engu hver á heima þar. Þegar þessi dýr eru farin að fara inn til fólks, uppí rúm og röltandi um allt þá á að segja stopp. Ég er ekki frá því að ég myndi snúa kattardrusluna úr hálsliðnum ef hann kæmi inn til mín... ógeðslegu, heimsku dýr.
Í hverfinu hjá mömmu og pabba er alveg óhugnarlega mikið af köttum.... þetta er allsstaðar og alltaf reyna þeir að troða sér inn þegar hurðin er opin. Yfirleitt hleyp ég á eftir þeim og reyni að ná einu góðu sparki í þá en best er að vera tilbúin með risa fötu fulla af ísköldu vatni og hella yfir þá.... allt svo þeir komi ekki aftur.

En þetta er ekki spurning... ketti í band og ekkert kjaftæði!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?