mánudagur
Góðan daginn Júlía ;-)
Mætti halda að óléttar konur elti mig á röndum... það eru allir að búa til börn en bara lítill hluti af þessu fólki sem er gift... ég bara skil ekki hvernig þau fara að þessu!!
En allavega, ég brunaði á eitt stykki fund í Reykjavík á föstudaginn.... eftir fundinn átti ég svo að fá far með einhverjum Herði sem vinnur með Hörpu Hrönn á IT ferðum. Hafði ekki hugmynd um hvernig þessi maður lítur út og ekki vissi hann hver ég er en einhvernvegin áttum við að hittast. Ég fór á netið kvöldið áður og fann mynd af kauða svo ég hefði einhverja hugmynd að hverjum ég ætti að leita.... eins ómannglögg og ég nú er gleymdi ég alveg um leið hvernig hann lýtur út en Harpa sagði mér að hann væri hávaxinn og ljóshærður..... sko, það eru allir hávaxnir í mínum augum!! Jæja, var eitthvað takmarkað að fylgjast með fundinum þar sem ég var alltaf að horfa í kringum mig og leita að manninum sem ég átti að hitta.... fann hann loksins sitjandi tveim röðum fyrir aftan mig og passaði ég að hafa auga með honum. OK, áfram hélt þessi fundur og ég er alveg sannfærð um að þessi meinti Hörður hafi haldið að ég væri að reyna við sig.... alltaf að snúa mér við til að fylgjast með honum og brosti svo eins og hálfviti til hans. Tíminn leið nokkuð hratt og loksins var komið að umræðu og almennum spurningum. Ég sá að Hörður rétti upp hönd og ætlaði eitthvað að leggja til málanna.... þarna sat ég eins og stolt kærasta og fylgdist með honum.... loksins var hann kallaður upp... ”Já, Sævar er næstur, gjörðu svo vel Sævar!!!”
WHAT, þvílíkt sjokk.... var svo hann Hörður minn ekkert Hörður, heldur einhver Sævar. Á þessu augnabliki var fundurinn alveg að verða búinn og ég hafði bara nokkrar mínútur til að finna réttan Hörð..... það tókst ekki og vil ég meina að hann hafi aldrei verið á þessum fundi þótt Harpa segi annað!! En allt endaði þetta vel og ákváðum ég og Harpa ferðamálafrömuður að kíkja aðeins í IKEA eftir fundinn, svona á meðan ég beið eftir fluginu mínu heim.... hressandi stopp og fór ég aftur til baka með kaffivélinni.... uppí þá vél hoppaði svo Ólinn og púlaði yfir sig í borginni fram á sunnudag og var ég því í hjúkkuleik allan gærdaginn.
Maður á að hugsa vel um manninn sinn.... spakmæli frá ömmu :-)