mánudagur
Mánudagsmorgun
Komumst á áfangastað og redduðum okkur leigubíl á hótelið.... leigubílsstjóri dauðans þar á ferð og hikaði hann ekkert við að keyra á gangstéttunum, sennilega til að slá sitt eigið tímamet frá flugvellinum og á hótelið.
Hótelið var snilld (hér þarf að koma ný skilgreining á orðinu snilld).... baðherbergið stórt og gott með risa hornbaðkari (nei það er ekki satt), stórir gluggar með fallegu útsýni (það er ekki heldur satt), notarlegt rúm og allt svo hreint og snyrtilegt (ansi mikil lýgi hér á ferð). Dögunum eyddum við svo í búðarráp, út að borða, leikhús, sýnisferðir um staðinn og lentum meira að segja á múslimahátíð.... mikil upplifun þar sem einhver dúddi flutti gjörning uppá risa stóru sviði. Hvatti svo alla til að fara inná klósett til að þvo sér um hendurnar áður en það færi að biðja.... ekki mikið um hryðjuverkaárásir þennan daginn! (þetta er allt satt).
Við versluðum ekki neitt handa okkur sjálfum...... EKKERT (já þetta er ekki lýgi)!! Það var algjört helvíti að labba inní búðirnar þar sem það var svo mikið af fólki allsstaðar og öskrandi börnum. Við öskruðum bara á móti og hlupum út..... eyddum samt alveg nóg af pening í allskonar skemmtanir og þessi ferð heppnaðist alveg ofboðslega vel :-)
Rosalega var svo gott að lenda á Akureyri.... úrvalið í fríhöfninni var það mesta sem ég hef séð lengi og ætlaði ég aldrei að komast út.... 2 tegundir af kremi, 5 tegundir af ilmvatni (tvær kalla og þrjár konu), 10 geisladiskar (meða annars Þessi þungu högg með Sálinni!!), 5 tegundir af tyggjói sem allir eru löngu hættir að kaupa.... sennilega afgangur úr herstöðinni (rautt, blátt, grænt, gult, silfrað með gulum stöfum og venjulegt silfrað), smá M&M hér og þar og fullt af áfengi og sígó. Ég kippti einni Campari og silfruðu tyggjói með mér út úr fríhöfninni, sótti töskurnar og var fyrst út úr flugstöðinni..... tók ekki nema 10 mínútur!!
Næst er það Ameríka!!
þriðjudagur
Útlönd :-)
mánudagur
Upp og niður
Áttu erfitt með að æla?
Líður þér eins og þú hafir drukkið endalaust margar flöskur af laxarolíu?
Pissaru með rassinum?
Ertu að drepast úr hugri af því að þú hefur ekki borðað neitt í 3 daga en getur ekki hugsað þér að setja nokkurn skapaðan hlut inn fyrir varirnar á þér?
Ertu algjörlega orkulaus af næringarskorti?
Þarftu að bursta í þér tennurnar 5 sinnum á dag vegna ógeðis?
Geturu ekki sofið vegna verkja í maganum?
Geturu ekki sofið vegna legusára eftir að hafa legið síðustu 38 tímana uppí rúmi?
Ferðu á klósettið að meðaltali 25 sinnum á dag?
Fyllistu stundum sannfæringarkrafti að nú sé þér batnað?
Ætlar að vera rosa dugleg, fara í sturtu og rífa þig af stað í vinnuna en fattar svo að það bara virkar ekki svoleiðis?
Ferð á fætur en fattar eftir 10 mínútur að þú getur ekki staðið?
Springa varirnar á þér vegna vökvaskorts þegar þú loksins ákveður að troða einhverjum mat uppí þig?
Tekur það þig 20 mínútúr að kyngja einum matarbita? Eins og þú sért að borða saltfisk.... sígur fyrst allan safann úr fiskinum og hamast svo við að tyggja þurrann fiskinn?
.....Sniðug megrunarleið???
Nei, þetta er haustælupestin 2006!!
föstudagur
Magnificent
Þema helgarinn í Sjallanum er Magni og félagar hans í hljómsveitinni Á móti sól.... það verða fjölskyldutónleikar, venjulegir tónleikar og svo þrusu dansleikur. Alveg merkilegur fjandi að það er engin smá stemmning fyrir þessu og bara gjörsamlega allir ætla að mæta... já mjólkum þetta aðeins!! Ef Magi hefði ekki verið í Rockstar væru bara þessir klassísku 17-19 ára unglingar að fara í Sjallann á þessa blessuðu hljómsveit.
Mér fannst Magni standa sig rosa vel í Rockstar og ég fylgdist svo sannarlega með honum, þótt ég væri ekkert að missa svefn yfir þessu. Flott, hann lenti í fjórða sæti og var landi og þjóð til sóma..... ekki dettur mér samt í hug að fara á ball með Á móti sól, ekkert frekar en þegar Magni og félagar voru bara eins og hver önnur sveitaballahljómsveit á Íslandi.... svona frekar leiðinlegir! En þessi þjóð er svo klikkuð... núna dýrka allir Magna, alveg sama hvaða álit þeir höfðu á honum áður en hann fór til Ameríku að meika það!!
miðvikudagur
Oj bara
En gærdagurinn var bara eins og venjulegur dagur, ekkert merkilegur. Fór í vinnuna en ákvað að sleppa hádegismatnum til að geta hætt fyrr en svo var bara svo mikið að gera að ég var að vinna alveg til fjögur. Talaði við fullt af allskonar fólki, skipulagði uppskeruhátíð og fund á fimmtudaginn. Loksins þegar dagurinn var búinn kom Óli og sótti mig og Elvar Mána og við fórum öll saman uppí Drekagil. Óli skrapp aðeins út en á meðan var ég heima að leika við Elvar og horfa á teiknimyndir, ferlega huggulegt. Svo var það bara þetta venjulega, fara í sturtu og borða kvöldmat.......
**OK, þarf að æla úr leiðindum..... og hér kemur bissukúlan beint í hausinn á mér.... PLAFFF**
Allir að kommenta!!
mánudagur
Góðan daginn Júlía ;-)
En allavega, ég brunaði á eitt stykki fund í Reykjavík á föstudaginn.... eftir fundinn átti ég svo að fá far með einhverjum Herði sem vinnur með Hörpu Hrönn á IT ferðum. Hafði ekki hugmynd um hvernig þessi maður lítur út og ekki vissi hann hver ég er en einhvernvegin áttum við að hittast. Ég fór á netið kvöldið áður og fann mynd af kauða svo ég hefði einhverja hugmynd að hverjum ég ætti að leita.... eins ómannglögg og ég nú er gleymdi ég alveg um leið hvernig hann lýtur út en Harpa sagði mér að hann væri hávaxinn og ljóshærður..... sko, það eru allir hávaxnir í mínum augum!! Jæja, var eitthvað takmarkað að fylgjast með fundinum þar sem ég var alltaf að horfa í kringum mig og leita að manninum sem ég átti að hitta.... fann hann loksins sitjandi tveim röðum fyrir aftan mig og passaði ég að hafa auga með honum. OK, áfram hélt þessi fundur og ég er alveg sannfærð um að þessi meinti Hörður hafi haldið að ég væri að reyna við sig.... alltaf að snúa mér við til að fylgjast með honum og brosti svo eins og hálfviti til hans. Tíminn leið nokkuð hratt og loksins var komið að umræðu og almennum spurningum. Ég sá að Hörður rétti upp hönd og ætlaði eitthvað að leggja til málanna.... þarna sat ég eins og stolt kærasta og fylgdist með honum.... loksins var hann kallaður upp... ”Já, Sævar er næstur, gjörðu svo vel Sævar!!!”
WHAT, þvílíkt sjokk.... var svo hann Hörður minn ekkert Hörður, heldur einhver Sævar. Á þessu augnabliki var fundurinn alveg að verða búinn og ég hafði bara nokkrar mínútur til að finna réttan Hörð..... það tókst ekki og vil ég meina að hann hafi aldrei verið á þessum fundi þótt Harpa segi annað!! En allt endaði þetta vel og ákváðum ég og Harpa ferðamálafrömuður að kíkja aðeins í IKEA eftir fundinn, svona á meðan ég beið eftir fluginu mínu heim.... hressandi stopp og fór ég aftur til baka með kaffivélinni.... uppí þá vél hoppaði svo Ólinn og púlaði yfir sig í borginni fram á sunnudag og var ég því í hjúkkuleik allan gærdaginn.
Maður á að hugsa vel um manninn sinn.... spakmæli frá ömmu :-)
miðvikudagur
Félag eldriborgara
Skrapp í Bónus í gær.... og daman á kassanum talaði við mig á ensku!! Rasistahugsanirnar flugu uppí hausinn á mér.... ég á ekki að þurfa að tala útlensku þegar ég versla í matinn á Íslandi. Andskotinn!!
þriðjudagur
Still alive
Hef ákveðið að skella mér aðeins af landi brott núna einhverntíman í mánuðnum, heilsuferð fyrir gamalt fólk.... segi kannski betur frá því þegar ég kem aftur til baka!!
föstudagur
8. október 2006
Blessss....
miðvikudagur
Kettir
En jæja.... það sem mér finnst að ætti að taka til umræðu í næsta kaffitíma er kattarhald. Það á að banna lausa ketti í bænum (best væri að banna þessi dýr alfarið í bæjum enda eiga þau bara að vera í sveit en það myndi aldrei nokkurntíman ganga upp).
Þessi dýr eru veiðandi fugla og mýs, strjúka sér svo uppvið mann og ætlast til þess að maður klappi þeim... löðrandi í allskonar ógeði. Svo er þetta mígandi og skítandi í sandkassa þar sem börn eru að leika sér og oftar en ekki borða krakkarnir sandinn. Það ógeðslegasta af öllu er þegar þessi kvikindi hoppa innum næsta glugga sem þau sjá... skiptir engu hver á heima þar. Þegar þessi dýr eru farin að fara inn til fólks, uppí rúm og röltandi um allt þá á að segja stopp. Ég er ekki frá því að ég myndi snúa kattardrusluna úr hálsliðnum ef hann kæmi inn til mín... ógeðslegu, heimsku dýr.
Í hverfinu hjá mömmu og pabba er alveg óhugnarlega mikið af köttum.... þetta er allsstaðar og alltaf reyna þeir að troða sér inn þegar hurðin er opin. Yfirleitt hleyp ég á eftir þeim og reyni að ná einu góðu sparki í þá en best er að vera tilbúin með risa fötu fulla af ísköldu vatni og hella yfir þá.... allt svo þeir komi ekki aftur.
En þetta er ekki spurning... ketti í band og ekkert kjaftæði!!
mánudagur
Sími gjörðu svo vel....
.... Núna á ég 13 gloss!!!