<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

Svefnröskun 

Ég er haldin sjúkdómi.... reyndar er ég frekar mikið gallað eintak og því nokkrir sjúkdómar sem eru að hrjá mig og kom ég um daginn með skilgreiningu á Áttvillingi sem ég vil meina að sé einhver sá argasti sjúkdómur sem ég hef upplifað. Í þetta skiptið ætla ég að fræða ykkur örlítið um svefnröskunarsjúkdóm sem hrjáir mig.

Einstaklingur sem haldinn er svefnröskunarsjúkdóm er oftar en ekki álitinn veikur á geði. Er það reyndar hinn argasti misskilningur heldur eru þessir einstaklingar nánast undantekningarlaust virkilega misskildir karakterar.... Að sjálfsögðu eru til margar tegundir af þessu sjúkdóm og er LittleKate-Syndrome versta tegundin. Einstaklingur sem haldinn er þessari tegund er oftar en ekki virkilega æstur í svefni, rífst við sjálfan sig og ásakar aðra um hávaða og leiðindi. Sjaldnast skilst hvað sjúklingurinn er að rífast um en þó kemur fyrir að ýmsar klassa setningar fái að heyrast. Ef manneskja með LittleKate-Syndrome sefur með einhvern við hlið sér á hann það til að vekja þá manneskju með ýmsum aðferðum og skammast svo yfir einhverju gjörsamlega óskiljanlegu.... Þessir einstaklingar hafa virkilega mikla tjáningarþörf, eru oftar en ekki kúgaðir í hinu daglega lífi og er þetta eina leiðin fyrir þá til að tjá sig....

Skil ekki alveg, en einhverra hluta vegna virðast alltaf fleiri og fleiri bætast í þann hóp að segjast vera með mig í liðveislu. Ég er ekki svona rosalega klikkuð... eða hvað??!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?