fimmtudagur
Ekki Kristín!!
Góður stelpuhittingur í gærkvöldi þar sem ég borðaði mig til máttleysis... alveg merkilegt að alltaf lætur maður eins og þetta sé manns síðasta og eigi aldrei aftur eftir að smakka súkkulaðirúsínur, kex, ís eða annan gleðigjafa, enda er stéttarskiptingin á mínu heimili í samræmi við þetta.... ég sé um að borða og innbyrgja eins mikla óhollustu og tveir líkamar höndla... hinn helmingurinn sér svo um að hreyfa sig á við tvo og rúmlega það!!
Helgin framundan þar sem við ætlum að taka púlsinn á menningarlífi Akureyrar... bíó, matarboð, leikhús, út að borða, sund, Brynja og skanna fleiri staði sem hægt er að eyða öllum þessum peningum. Spörum kannski eitthvað af þessu fyrir erfiðdrykkjuna mína sem verður um næstu helgi.... úffff.
Að lokum.... það fer alveg óstjórnlega mikið í taugarnar á mér þegar ég sendi mail á fólk og fæ svo svar til baka.... Sæl Kristín!! Mest langar mig til að hringja til baka í aðilann og öskra á hann í símann.... Ég heiti Katrín, drullutussan þín!!!!