þriðjudagur
Versló 2006
Ø Miðvikudagur: Hádegismatur á Peng´s í 25 stiga hita, glampandi sól og frábærum félagsskap hennar Þóru. Fengum nett Aussie flashback. Skelltum okkur svo í sund, í Brynju og ég svo aftur í sund..... seinnipartinn hitti ég svo sambýliskonuna á Amour og við skáluðum fyrir versló.... góð byrjun á helginni!
Ø Fimmtudagur: Sleikti sólina fram eftir degi en fór svo til Þóru í grill og bjórdrykkju. Fengum gríðarlega andlega og líkamlega útrás.... miklar og skemmtilegar kynlífsumræður runnu niður með bjórnum og risa trampolínið sennilega misnotað. Kíktum á lífið í bænum í góðum félasskap og slaufuðum kvöldinu á mjög skemmtilegan hátt....
Ø Föstudagur: Sannaðist enn og aftur hvað ég er í gríðarlega góðu formi.... fór á fætur og fann að bakið var ekki að gúddera allt þetta trampolínrugl og er ég með svo mikla ógeðisáverka á fótunum að það kæmi ekki á óvart ef haft yrði samband við Stígamót!! Hitti Fjóluna og manninn í bænum... röltum um en vegna mikilla eymsla í bakinu og doða í öllu marinu sem hylur líkama minn entist ég ekki lengi. Brunaði svo með Bjössa og mömmu í Ásbyrgi og fór aftur á tónleika með Sigur Rós þar... eitt orð: stórkostlegt!!
Ø Laugardagur: gisti í sumarbústaðnum hjá mömmu og pabba og lág þar í letikasti fram eftir degi. Krúsaði í bæinn með Bjössa.... svo hófst rólegt stelpupartý í B10. Litla með tilraunastarfsemi í gangi og drakk hvítvín og bjór til skiptis... heppnaðist fínt og var ég ekki eins sjúk af þessu og ég bjóst við. Rölti á milli Amour og Kaffi Ak allt kvöldið.... þurfti aldrei að bíða í röð, af því að ég er svo töff!! Týndi nánast öllum sem ég þekki og tróð mér því uppá Hreiðar og félaga.... góður vinur þar á ferð því hann fann að sjálfsögðu handa mér mann!!! 45 ára gamlan ”ofurtöffara” með gráa fiðringinn frá helvíti... hann lét mig ekki vera og mér var hætt að litast á blikuna þegar gaurinn mætti með kveikjara.... einmitt, til að kveikja í mér!!! Hrikalega skemmtilegt kvöld :-)
Ø Sunnudagur: Amma var svo elskuleg að bjóða barnabörnunum í þynnkukaffi.... vöfflur, ís og súkkulaðikaka. Fékk að fara með Adda mínum útí sveit og hitta vini hans þar... ferlega fyndið lið en stoppuðum bara stutt. Skelltum okkur á brekkusönginn og horfðum á flugeldasýninguna sem var alveg sjúklega flott... ætluðum í partý þarna í nágrenninu en þakka guði fyrir að liðið var frekar til í að skella sér í B10.... hef aldrei á ævi minni séð annað eins húsnæði og að fólk skuli búa þarna inni, sjæse!!! Kata og strákarnir höfðu það gott í B10 og var þetta sennilega síðasta partýið sem ég mun halda þar..... skemmtilegur félagsskapur og góður endir á annars stórkostlegu tímabili. Drösluðumst einhverntíman seint í bæinn og beint inná Kaffi Ak þar sem við dönsuðum og svitnuðum eins og ég veit ekki hvað langt fram á morgun. Fór í smá bíltúr á leiðinni heim af djamminu og á útsýnispallinn... vááá hvað Akureyri er fallegur bær :-)
Jájá... dúndra inn myndum við tækifæri!!