<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

Hjálpartæki ástarlífsins 

Lá í heitapottinum á Þelamörk með Þóru um daginn þegar tvær gellur leggjast þar líka og byrja að tala um naglasnyrtingar á tám, what!!..... mér leið eins og versta karlmanni þarna við hliðina á þeim með mínar naglabandstættu og sundurnöguðu neglur... ætla ekki einusinni að lýsa táneglunum. Alveg spurning um að fara að rækta kvenlegu hliðina á mér. Ekki lesbíu hliðina, heldur kvenlegu hliðina!

Þá er það Reykjavík um helgina.... hlakka mikið til :-) Ef allt gengur að óskum og Litla endar ekki útúr drukkin með sprautunálar í handleggnum og hvíta rönd í nebbanum inná klósetti á einhverjum skemmtistað, má búast við skemmtilegum pistli hingað inn eftir helgi.

... en þangað til, stay black og passið ykkur á hjálpartækjum ástarlífsins ;-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?