mánudagur
Ekki ljóska
Ákvað að taka smá pæjutakta á þetta og skellti mér í litun á föstudaginn enda hárið orðið vel upplýst eftir sól sumarsins.... klipparakonan mín neitar að lita hárið á mér í ljósum lit þannig að gamla vel dökka hárið er komið aftur.... ægilega gott :-) Mín venjulega klipparakona sveik mig reyndar og lét einhverja aðra kjellingu lita lokkana mína.... ekki frá því að hún hafi verið nemi!!
Ég þurfti að byrja á því að bíða í 20 mín... las eitt stykki Séð og heyrt og fann hvernig heilasellurnar byrjuðu að fremja sjálfsmorð hver í kapp við aðra. Komst loksins að, fékk svuntuna um hálsinn og sá hvernig konan horfði á síða hárið sem ég er búin að safna í 2 ár og bjó sig undir að klippa það í burtu.... daaaaa bara lita, ekki klippa takk fyrir!!
Eitthvað var hún stressuð og komin í mikla tímaþröng blessunin þannig að hún var heldur brussuleg þegar hún sullaði litnum í hárið á mér.... og ekki bara í hárið heldur á svuntuna, ennið og kinnarnar á mér. Alveg róleg vinkona!
Keipps, var látin bíða með þetta eiturefni í hausnum allt of lengi og fann hvernig húðin var byrjuð að sviðna undan þessum lit. Á meðan las ég nokkur erlend tímarit og skilaboðin voru skýr; þú ert fitubolla..... klipparinn kallaði mig loksins að vaskanum og bjargaði mér frá glötun eftir lestur þessara blaða og þá mundi ég af hverju ég fer í litun.... hausnuddið ógurlega, ekkert þægilegra. Neinei ekkert hausnudd þennan daginn, þessi bara hjakkaðist svoleiðis á hausnum á mér og reyndi að ná litnum í burtu.... smá sjampó hér og þar og sápan slettist mjög reglulega í augun á mér þar sem ég gat ekki legið þarna með augun lokuð og slappað af, slíkur var hamagangurinn í kjellu. Úffff.... slapp loksins úr þvottinum og labbaði í stólinn þar sem konan ætlaði að þurrka hárið. Byrjaði að blása það og greiða.... skipti í miðju og sleikti hárið niður eftir bollukinnunum mínum! Lærir þetta hárgreiðslufólk ekki neitt? Þarna sat ég með þrönga svuntu um hálsinn og hárið greitt í miðju.... já þetta var slæmt.
Alsæl kjellingin þegar hún sýndi mér afraksturinn. Tja, ég veit ekki hvort var meiri litur í hárinu eða andlitinu á mér. Ég kvartaði og þá hófst húðhreinsunin og mikið skrúbbaði hún kinnarnar á mér fast, en þrátt fyrir það þá er ég enn með nokkra brúna bletti á enninu.... eins gott að ég er hætt þessum karlaveiðum!!
..... borgaði fyrir þetta með bros á vör.
OK, síðasta setningin er lýgi!!!