<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

Sigurrós 

Ég hef aldrei fýlað Sigurrós og ég þori alveg að viðurkenna það.... ég slekk á útvarpinu þegar ég heyri í þeim og finnst þeir almennt bara plein leiðinlegir. Alveg finnst mér merkilegt að einhverra hluta vegna þá er ég álitin fíbbl fyrir þessa skoðun mína.... Siggurrós spilar mjjjöööög sérstaka tónlist sem allir virðast fýla í tætlur... ég bara skil það ekki!! Jæja, ég skellti mér nú samt á tónleikana með þeim á föstudagskvöldið og sé alls ekki eftir því. Það var besta veður í heimi og útsýnið gerist ekki fallegra... var í snilldar félagsskap, chillaði í grasinu og hlustaði á tónlistina sem hefði ekki geta passað betur á þessu augnabliki. Yndislegt!! Breytti samt ekki skoðun minni á Sigurrós... ég mun slökkva á útvarpinu þegar ég heyri í þeim.

Á laugardaginn var grill hjá Jóhönnu og Nonna.... góðar pylsur og steikti laukurinn vakti mikla lukku. Merkilegt hvað áfengi hefur skemmtileg áhrif á mann og endaði þetta teiti í miklu fjöri. Mér var svo hent inní bíl og brunað á Amour. Addaknús sem klikkar ekki og mikið dansað....... Full mikið kannski þar sem ég braut smá úr framtönn og það lúkkar ekki vel. Dröslaðist með pylsurnar í töskunni alla nóttina og góður svipur á fólki þegar ég dró þær upp í tíma og ótíma. Líney fæ titilinn djammari kvöldsins og á ég nokkrar áhugaverðar myndir því til sönnunar. Fámennt en virkilega fróðlegt eftirpartý í B10 og kvöldinu slaufað :-)

Sá kærustu stráks sem ég þekki um helgina og ég myndi ekki borga meira en 1000 kall fyrir að sofa hjá henni.... hummm, kannski búin að lesa 101 Reykjavík aðeins of oft!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?