fimmtudagur
Samningsbundinn
Það var þann 27. janúar 2006 sem gerður var skriflegur samningur til þriggja ára á milli Katrínar Harðardóttur og Rögnvaldar Birgis Johnsen og var hann svo hljóðandi:
Samningur þessi er á milli Katrínar Harðardóttur (hér eftir nefnd Umbinn) og Rögnvaldar Birgis Johnsen (hér eftir nefndur Verkefnið) á grundvelli laga nr. 138/2006, um umboðsmennsku og með hliðsjón af stefnu ríkisstjórnarinnar frá janúar 2006 um sölumennsku á manneskjum.
Samningurinn grundvallast á og tekur mið af:
Grófri lýsingu á Verkefninu.
Stefnu Umbans í rekstri Snillinga ehf.
Stefnu ríkisstjórnarinnar í fjárstyrkjum til að reka fyrirtækið Snillingar ehf.
Markmið og aðgerðir árið 2006-2007.
Stefnu og áherslum Snillinga ehf.
Samningur þessi geymir helstu áherslur í rekstri og þróun Verkefnisins á samningstímabilinu. Sameiginlegt markmið samningsaðila er að tryggja gæði Verkefnisins þannig að það samsvari þeim gildum og viðmiðum sem viðtekin eru í Evrópu.
Umboðsmaðurinn og Verkefnið gera með sér samning um rannsóknir, sölumennsku, markaðssetningu, sjálfsskoðun og almenna gleði.
Núna, hálfu ári seinna, er komin ný tegund á markaðinn.... ”hinn nýji Röggi” Þetta er búið að vera langt og strangt ferli hjá okkur... stanslaus vinna en ég held að þetta sé allt að mjakast í rétta átt og ég get verið stolt af því starfi sem ég hef unnið á manninum:
Hann á konu, hann er hættur að reykja, hann fer út að skokka á morgnana, hann fer í sund eftir vinnu, hann spilar golf á kvöldin, hann gaf þröngu hvítu skyrtuna sína, hann á samt ennþá rifnu gallabuxurnar (það má ekki tapa sér alveg í umbreytingunni). Nýji Röggi er reyndar ekki eins skemmtilegur og sá gamli en það er nokkuð sem ég mun halda áfram að vinna í á næstu mánuðum.
Katrín Harðardóttir, umboðsmaður