mánudagur
Reunion
Brunaði úr bænum á fimmtudaginn með henni Þóru minni.... skruppum til Húsavíkur í hvalaskoðun í blíðskapar veðri. Var allavega snilldar veður á meðan við borðuðum samlokuna okkar og bjórinn.... Skelltum okkur svo í útivistargallann, settum upp sólgleraugun og vorum lang flottastar á svæðinu (þessir dönsku ellilífeyrisþegar voru líka að fíla okkur í tætlur). Sáum helling af hvölum, höfrungum og steypireiðum... svo kom mígandi rigning og mikill kuldi þannig að við ákváðum að setjast inn í smá stund.... ekkert rosalega góð hugmynd þar sem lyktin þar var viðbjóðsleg og sjóveikin ákvað að láta sjá sig. Úfff, fann hvernig maturinn ólgaði í maganum á mér og svo byrjaði ég að kúgast. Hljóp að klósettinu en það var upptekið.... ég klemmdi munninn saman og náði að stoppa æluna þannig að hún flaut í munninum á mér. Ég hélt áfram að kúgast og eina ráðið var að kyngja ælunni aftur..... og ég gerði það!!!! *HROLLUR*
Þegar við komum í land vorum við rennandi blautar og ískaldar. Brunuðum aftur heim til Akureyrar og vorum ógeðslega tussulegar þegar við röltum smá hring á kaffihús bæjarins... góð ferð Þóra :-)

Svo var það reunionið.... byrjuðum á smá hitting með pizzu og bjór heima hjá Birnu á föstudagskvöldið. Drukkum í okkur kjark til að horfast í augu við fólkið sem maður var með í skóla fyrir 10 árum síðan. Vá hvað var fyndið/gaman að hitta þetta lið; suma hef ég ekki séð í 10 ár og það voru nokkrir í sama pakka ég.... höfðu ekkert breyst. Þetta var alveg frábært en fólk var eitthvað mis hresst og sumir entust lengur en aðrir. Klárlega vorum ég og Kristján að brillera hvað bjórdrykkju og dans varðar.... en góð upphitun fyrir laugardaginn.
Nýr bjór opnaður strax klukkan þrjú á laugardaginn, rölt um Gaggann, skruppum í gömlu Dynheima þar sem Bjössi slanga beið okkar, brunuðum svo uppí Hamra og tókum nokkra góða leiki. Vil meina að bekkurinn minn hafi unnið allar þrautirnar.... það voru aðrir í því að svindla!! Survivor fílingurinn í hávegum hafður og ég og Kristján í úrslitum, ekki spurning. Eftir mikið át, endalaust mikið af myndum, spjalli og söng sem Heimir og Stulli stjórnuðu var haldið í bæinn..... skipt um föt og haldið á Kaffi Ak þar sem árgangurinn fór á kostum á dansgólfinu. Rölti svo annað slagið inná Amour.... hmmm ;-)
Ég og Karen tókum okkur reyndar til og skruppum í Sjallann í smá stund og fengum ekkert lítið hláturskast þar inni..... foreldravaktin mætt á svæðið, hahahahaha!!!
Góð hugmynd hjá mér að skilja símann minn eftir heima, eða ekki.... Harpa lánaði mér símann sinn og ég hringdi eftir minni í vissan aðila.... komst svo að því að einhver Rut Jóhannsdóttir á Stokkseyri á það númer, góður!!
Góóóð helgi... ekki spurning!!
Hér er svo hluti af 10-A... glæsileg!! Hér eru myndir og hér