mánudagur
Liðveislan góða
Var ekki að nenna að vera í vinnunni á föstudaginn vegna þreytu og almennrar þynku... ég og sambýliskonan skelltum okkur aftur í bíó á fimmtudagskvöldið og sáum rétta mynd. Hituðum aðeins upp fyrir bíóið, í bíóinu og svo eftir bíóið.... drösluðumst heim einhverntíman seint og vöknuðum allt of snemma.
Svo var það Reykjavík með allri sinni rigningu og skemmtilegheitum. Skírnin var frábær og heitir litli stubburinn Vilhjálmur Bjarni Gíslason. Eftir mikið át og spjall við liðið voru Karen og Grjóni heimsótt í nýju íbúðina. Hitakútur var á svæðinu ásamt Fjólu, hennar manni og Lóu. Við tók Svínasúpan, bjórdrykkja, fótboltaspilið og duttum ég og Karen svona gjörsamlega í bull gírinn.... Byrjuðum á því að hringja í Birnuna og láta hana öfundast útí okkur (vinnualki!) og svo skutlaði Lóa okkur í bæinn en þurfti sjálf að fara snemma heim af því að hún á barn!!! Shitturinn titturinn mellan og hóran hvað var mikið stuð á okkur og geðveikin tók völdin... dönsuðum eins og þroskaheft par á Hressó, fórum á Celtic og hittum Freysa og Elfu sem ég hef ekki séð í hátt í 2 ár, hökkuðum einhverja stelpu í okkur og bulluðum hana svoleiðis í kaf að hún var gráti næst, lesbían ég var komin með 4 stráka sem ætluðu með mér heim.... allir í einu. Þeim fannst það bara töff að Karen skyldi vera með mig þarna í liðveislu og þótti ekkert tiltökumál þótt hún myndi koma með okkur heim í þeim tilgangi að horfa á!! Alveg merkilegt að fólk kippi sér ekkert upp við það þótt Karen segist fá borgað fyrir að hanga með mér... fólk horfir bara á mig og kinkar kolli með vorkunnar svip, hahahahaha!! Hitti stokkerinn minn tvisvar (sem er þrisvar sinnum of oft) og reyndi í seinna skiptið að fela mig á bakvið Karen..... heppnaðist svo innilega alls ekki, úfff. Datt í gírinn góða og byrjaði að hringja í fólk, syngja inná talhólfið og senda sms.... Slúttuðum kvöldinu svo á Hressó og löbbuðum lengstu leið í heimi heim.
Ekkert nema hressleikinn í gær.... knúsaði frændsystkinin í klessu og svo krúsað norður, rosalega er alltaf gott að koma heim :-)
Grjóni, ég þarf að komast á tónleika með Hitakút... bwahahahahahahahahaha!!