þriðjudagur
Leiðrétting!!??!!
Ég er aftur dottin í þann pakka að vilja loka þessari síðu og hætta alfarið að blogga..... ég er svo misskilin manneskja að það nær engri átt, alveg merkilegt. Þegar ég er stoppuð í sundi af einhverjum sem ég þekki ekki neitt, ávörpuð með nafni og spurð útí meintar færslur sem hafa litið dagsins ljós þá fer ég að velta því fyrir mér hversu sniðug þessi síða sé. Ég á það til að vera full fljót á mér þannig að ég hugsaði málið aðeins og komst að þeirri niðurstöðu að mér er alveg sama hvað fólk les úr þessari vitleysu sem ég skrifa hingað inn.... þessar ýkju- og lygasögur eru ekki heilagur sannleikur og ef lífið er ekki nógu spennandi þá kryddar maður það aðeins, einfalt mál.
En ég er alltaf að sjá það samt betur og betur af hverju fólki finnst sjálfsagt mál að Karen sé með mig í liðveislu.... af strákunum að dæma sem ég hitti í sundinu þá halda þeir sennilega að ég sé illa vangefið eintak ;-)
Úffffff, en að allt öðru.......
OK... það er að koma ágúst og ekki enn búið að halda Dallas árshátíðina!! Þetta er til skammar. Núna styttist í að B10 verði lokað sem tökustað á Dallas -drama á Akureyri- þáttunum og ber ég miklar væntingar til H14....
Árshátíð í B10 næsta laugardag????
Tjáið ykkur um þetta.... ekkert kjaftæði!