mánudagur
Sigurrós
Ég hef aldrei fýlað Sigurrós og ég þori alveg að viðurkenna það.... ég slekk á útvarpinu þegar ég heyri í þeim og finnst þeir almennt bara plein leiðinlegir. Alveg finnst mér merkilegt að einhverra hluta vegna þá er ég álitin fíbbl fyrir þessa skoðun mína.... Siggurrós spilar mjjjöööög sérstaka tónlist sem allir virðast fýla í tætlur... ég bara skil það ekki!! Jæja, ég skellti mér nú samt á tónleikana með þeim á föstudagskvöldið og sé alls ekki eftir því. Það var besta veður í heimi og útsýnið gerist ekki fallegra... var í snilldar félagsskap, chillaði í grasinu og hlustaði á tónlistina sem hefði ekki geta passað betur á þessu augnabliki. Yndislegt!! Breytti samt ekki skoðun minni á Sigurrós... ég mun slökkva á útvarpinu þegar ég heyri í þeim.
Á laugardaginn var grill hjá Jóhönnu og Nonna.... góðar pylsur og steikti laukurinn vakti mikla lukku. Merkilegt hvað áfengi hefur skemmtileg áhrif á mann og endaði þetta teiti í miklu fjöri. Mér var svo hent inní bíl og brunað á Amour. Addaknús sem klikkar ekki og mikið dansað....... Full mikið kannski þar sem ég braut smá úr framtönn og það lúkkar ekki vel. Dröslaðist með pylsurnar í töskunni alla nóttina og góður svipur á fólki þegar ég dró þær upp í tíma og ótíma. Líney fæ titilinn djammari kvöldsins og á ég nokkrar áhugaverðar myndir því til sönnunar. Fámennt en virkilega fróðlegt eftirpartý í B10 og kvöldinu slaufað :-)
Sá kærustu stráks sem ég þekki um helgina og ég myndi ekki borga meira en 1000 kall fyrir að sofa hjá henni.... hummm, kannski búin að lesa 101 Reykjavík aðeins of oft!!

fimmtudagur
Samningsbundinn
Það var þann 27. janúar 2006 sem gerður var skriflegur samningur til þriggja ára á milli Katrínar Harðardóttur og Rögnvaldar Birgis Johnsen og var hann svo hljóðandi:
Samningur þessi er á milli Katrínar Harðardóttur (hér eftir nefnd Umbinn) og Rögnvaldar Birgis Johnsen (hér eftir nefndur Verkefnið) á grundvelli laga nr. 138/2006, um umboðsmennsku og með hliðsjón af stefnu ríkisstjórnarinnar frá janúar 2006 um sölumennsku á manneskjum.
Samningurinn grundvallast á og tekur mið af:
Grófri lýsingu á Verkefninu.
Stefnu Umbans í rekstri Snillinga ehf.
Stefnu ríkisstjórnarinnar í fjárstyrkjum til að reka fyrirtækið Snillingar ehf.
Markmið og aðgerðir árið 2006-2007.
Stefnu og áherslum Snillinga ehf.
Samningur þessi geymir helstu áherslur í rekstri og þróun Verkefnisins á samningstímabilinu. Sameiginlegt markmið samningsaðila er að tryggja gæði Verkefnisins þannig að það samsvari þeim gildum og viðmiðum sem viðtekin eru í Evrópu.
Umboðsmaðurinn og Verkefnið gera með sér samning um rannsóknir, sölumennsku, markaðssetningu, sjálfsskoðun og almenna gleði.
Núna, hálfu ári seinna, er komin ný tegund á markaðinn.... ”hinn nýji Röggi” Þetta er búið að vera langt og strangt ferli hjá okkur... stanslaus vinna en ég held að þetta sé allt að mjakast í rétta átt og ég get verið stolt af því starfi sem ég hef unnið á manninum:
Hann á konu, hann er hættur að reykja, hann fer út að skokka á morgnana, hann fer í sund eftir vinnu, hann spilar golf á kvöldin, hann gaf þröngu hvítu skyrtuna sína, hann á samt ennþá rifnu gallabuxurnar (það má ekki tapa sér alveg í umbreytingunni). Nýji Röggi er reyndar ekki eins skemmtilegur og sá gamli en það er nokkuð sem ég mun halda áfram að vinna í á næstu mánuðum.
Katrín Harðardóttir, umboðsmaður

þriðjudagur
Leiðrétting!!??!!
Ég er aftur dottin í þann pakka að vilja loka þessari síðu og hætta alfarið að blogga..... ég er svo misskilin manneskja að það nær engri átt, alveg merkilegt. Þegar ég er stoppuð í sundi af einhverjum sem ég þekki ekki neitt, ávörpuð með nafni og spurð útí meintar færslur sem hafa litið dagsins ljós þá fer ég að velta því fyrir mér hversu sniðug þessi síða sé. Ég á það til að vera full fljót á mér þannig að ég hugsaði málið aðeins og komst að þeirri niðurstöðu að mér er alveg sama hvað fólk les úr þessari vitleysu sem ég skrifa hingað inn.... þessar ýkju- og lygasögur eru ekki heilagur sannleikur og ef lífið er ekki nógu spennandi þá kryddar maður það aðeins, einfalt mál.
En ég er alltaf að sjá það samt betur og betur af hverju fólki finnst sjálfsagt mál að Karen sé með mig í liðveislu.... af strákunum að dæma sem ég hitti í sundinu þá halda þeir sennilega að ég sé illa vangefið eintak ;-)
Úffffff, en að allt öðru.......
OK... það er að koma ágúst og ekki enn búið að halda Dallas árshátíðina!! Þetta er til skammar. Núna styttist í að B10 verði lokað sem tökustað á Dallas -drama á Akureyri- þáttunum og ber ég miklar væntingar til H14....
Árshátíð í B10 næsta laugardag????
Tjáið ykkur um þetta.... ekkert kjaftæði!

Brúðkaup
Þá er þessari helgi lokið og var hún ekkert nema góð. Svoleiðis bullandi sól og sundlaugin helsti samkomustaðurinn.... föstudagurinn var reyndar kaldur og blautur þannig að það var hrikalega huggó að fara í heita sturtu eftir vinnu og skríða svo undir teppi með góða bók. Má segja að helgin hafi byrjað uppúr miðnætti þegar ég fékk mjög merkilegt símtal.... á góða vini sem gera allt til að koma mér út, algjörir hálfvitar þar á ferð :-)
Var komin á fætur fyrir klukkan 9 á laugardagsmorguninn og brunaði fjölskyldan útí Laufás til að vera vitni að giftingu hjá Rakel og Ole hinum danska..... sund sund sund.... veisla í Þingvallastrætinu sem endaði í algjöru bulli, allir blind fullir og sumir voru farnir að slást. Þar var svo Magga föða líka að reyna að koma mér út og er víst dugleg við það í vinnunni að kynna mig fyrir hinum og þessum drengjum, bara gaman að því!! Addi kom svo og sótti mig og fórum við í Kaffi Ak partý sem endaði með trylltum dansi í stofunni... ég og Þórunn ætluðum svo bara að hljóla í bæinn, eða hún ætlaði að hjóla ég yrði á bögglaberanum en eftir að hafa klesst á 3 bíla og dottið tvisvar ákváðum við að taka leigubíl!! Rölt á milli Amour og Kaffi Ak allt kvöldið og vááá hvað ég þekkti mikið af fólki, gaman gaman!
Eftirpartýsfílingur í liðinu.... boðið í H14 sem er án efa nýjasta og besta partýhúsnæði bæjarins þótt ég hafi reyndar aldrei afrekað það að koma þangað. Einhverjar stelpur fúlar í bænum þegar við vorum að bjóða í teiti þangað..... ”af hverju segið þið H14? Segið bara hvað gatan heitir” Hey, ef þið náið ekki að krakka dulmálið þá er ykkur ekki boðið.... svooooo einföld regla!
Ákvað samt að taka frekar ”égætlaaðveragóðvinkonaíkvöld”- taktana mína og fór í heitapottspartý í Huldugilið sem var ansi fyndið og undir lokin var fólkið eitthvað að pæla í að skella sér í Hrísey (sem var ekki eins fyndið), hefði samt verið næs að skríða uppí til Karenar og Grjóna!!
Löng og ströng sundferð í gær og svo grill og chill á pallinum í Akurgerðinu... næs :-)
Sumarið er greinilega komið.... bærinn fullur af brjóstahaldaralausum jussum í stuttermabol!!

Svitakast
Mánuður í flutning og ég fæ tremmaköst og almenna ógleði við tilhugsunina. Er með tivolífiðring í maganum allan sólahringinn og athyglin er ekki á réttum stað... ekki frá því að ég eigi eftir að lenda uppá sjúkrahúsi með bullandi magasár með þessu áframhaldi!!
miðvikudagur
Smá klúður
Við sambýliskonurnar tökum okkur stundum til og skellum okkur saman á Glerártorg, sem er eflaust leiðinlegasti staður á landinu. Okkur vantaði ýmislegt í búið í gær og ákváðum því að rölta á þennan menningarsnauða stað, fullan af bændum og gamalmennum. Harpa sagðist vera með lyklana þannig að ég losa mig við mína og við töltum af stað. Búnar að taka nokkur góð skref þegar Harpa panicar og fattar að lyklarnir eru ekki í vasanum eins og hún hélt..... og það eru ekki til neinir aukalyklar af B10!!
Þarna hófust samningaviðræðurnar.... innum hvaða glugga ættum við að reyna að troða okkur og hver átti að fórna sér. Gluggarnir eru allir í góðri hæð nema eldhúsglugginn þannig að í rauninni höfðum við ekkert val.... eldhúsglugginn yrði það. Shit hvað yrði samt erfitt að reyna að troða sér þarna inn, ekki skemmtilegasti gluggi í heimi. Sem betur fer höfum við góð sambönd í Landsbankanum, röltum þangað og redduðum okkur stiga og skrúfjárni. Helgi Teitur og Röggi svoleiðis tilbúnir til að gera allt til að hjálpa okkur en við hittum akkúrat á reykingarpásu hjá þeim félögum þannig að þeir komust ekki í gluggaklifrið með okkur.... þvílík óheppni!
Það sem gerðist næst er í frekar mikilli móðu þar sem ég var í svo mkilu hláturskasti en í grófum dráttum þá fórnaði Harpa sér.... festist í glugganum.... ég reyndi að halda glugganum opnum með einhverju priki.... Harpa náði að losa sig.... hvar var myndavélin!! Að lokum kom draumaprinsinn og bjargaði okkur..... 11 ára stelpustrákur sem klifraði innum gluggann á mjög dramantískan hátt og opnaði fyrir okkur.
Draumaprinsinn..... kannski full ungur en fínt að hafa svona stelpustrák þar sem ég veit ekki enn með hvoru liðinu ég á að spila.....!!

Reunion
Brunaði úr bænum á fimmtudaginn með henni Þóru minni.... skruppum til Húsavíkur í hvalaskoðun í blíðskapar veðri. Var allavega snilldar veður á meðan við borðuðum samlokuna okkar og bjórinn.... Skelltum okkur svo í útivistargallann, settum upp sólgleraugun og vorum lang flottastar á svæðinu (þessir dönsku ellilífeyrisþegar voru líka að fíla okkur í tætlur). Sáum helling af hvölum, höfrungum og steypireiðum... svo kom mígandi rigning og mikill kuldi þannig að við ákváðum að setjast inn í smá stund.... ekkert rosalega góð hugmynd þar sem lyktin þar var viðbjóðsleg og sjóveikin ákvað að láta sjá sig. Úfff, fann hvernig maturinn ólgaði í maganum á mér og svo byrjaði ég að kúgast. Hljóp að klósettinu en það var upptekið.... ég klemmdi munninn saman og náði að stoppa æluna þannig að hún flaut í munninum á mér. Ég hélt áfram að kúgast og eina ráðið var að kyngja ælunni aftur..... og ég gerði það!!!! *HROLLUR*
Þegar við komum í land vorum við rennandi blautar og ískaldar. Brunuðum aftur heim til Akureyrar og vorum ógeðslega tussulegar þegar við röltum smá hring á kaffihús bæjarins... góð ferð Þóra :-)

Svo var það reunionið.... byrjuðum á smá hitting með pizzu og bjór heima hjá Birnu á föstudagskvöldið. Drukkum í okkur kjark til að horfast í augu við fólkið sem maður var með í skóla fyrir 10 árum síðan. Vá hvað var fyndið/gaman að hitta þetta lið; suma hef ég ekki séð í 10 ár og það voru nokkrir í sama pakka ég.... höfðu ekkert breyst. Þetta var alveg frábært en fólk var eitthvað mis hresst og sumir entust lengur en aðrir. Klárlega vorum ég og Kristján að brillera hvað bjórdrykkju og dans varðar.... en góð upphitun fyrir laugardaginn.
Nýr bjór opnaður strax klukkan þrjú á laugardaginn, rölt um Gaggann, skruppum í gömlu Dynheima þar sem Bjössi slanga beið okkar, brunuðum svo uppí Hamra og tókum nokkra góða leiki. Vil meina að bekkurinn minn hafi unnið allar þrautirnar.... það voru aðrir í því að svindla!! Survivor fílingurinn í hávegum hafður og ég og Kristján í úrslitum, ekki spurning. Eftir mikið át, endalaust mikið af myndum, spjalli og söng sem Heimir og Stulli stjórnuðu var haldið í bæinn..... skipt um föt og haldið á Kaffi Ak þar sem árgangurinn fór á kostum á dansgólfinu. Rölti svo annað slagið inná Amour.... hmmm ;-)
Ég og Karen tókum okkur reyndar til og skruppum í Sjallann í smá stund og fengum ekkert lítið hláturskast þar inni..... foreldravaktin mætt á svæðið, hahahahaha!!!
Góð hugmynd hjá mér að skilja símann minn eftir heima, eða ekki.... Harpa lánaði mér símann sinn og ég hringdi eftir minni í vissan aðila.... komst svo að því að einhver Rut Jóhannsdóttir á Stokkseyri á það númer, góður!!
Góóóð helgi... ekki spurning!!
Hér er svo hluti af 10-A... glæsileg!! Hér eru myndir og hér

Hér er svo hluti af 10-A... glæsileg!! Hér eru myndir og hérmiðvikudagur
10 fokking ár
Finnst eins og ég sé sú eina sem blogga eitthvað og það mörgum sinnum á dag..... Þegar aðrir taka sér blogg pásur þá breytist ég í ofurbloggara!! En aaaallllavega....
.... 10 ára Gaggareunion um helgina. Bara eitt um það að segja; þetta verður fróðleg samkoma. Hverjir hafa breyst mest... sjálf er ég nú alveg eins og ég var þegar ég var 15 ára og það er ekkert djók!! Alveg merkilegur fjandi....

(Nokkurnvegin eins sjónarhorn)
Ætla að vera í fríi í vinnunni á föstudaginn, fara í smá sumarfrí og skella mér í hvalaskoðun á Húsavík annað kvöld (nýta það að vinna í þessum bransa) og gista svo í sumarbústaðnum þeirra mömmu og pabba..... vááá hvað mig vantar kærasta!!
En annars þá er ég að fara á stefnumót í hádeginu á föstudaginn.... í heitapottinum í sundlauginni, það verður blautt date!!
Kem með einhvern subbulegann pistil eftir helgi en þangað til..... stay black ;-)

Sláttur
Garðurinn í B10 er alveg ógeðslegasti garður í heimi..... þarf einhvernvegin að múta þessum bæjarstarfsmönnum og láta þá slá!
.... nema njólar og fíbblar séu í tísku!
.... nema njólar og fíbblar séu í tísku!
þriðjudagur
Slæmt!!
”Dagar og ár, lækna sár, engin tár....”
Er til eitthvað ömurlegra en svona textar, ég hreinlega spyr?
Er til eitthvað ömurlegra en svona textar, ég hreinlega spyr?
mánudagur
Aumingjagenin
Hef ákveðið að taka þetta helvítis ofnæmiskjaftæði á þrjóskunni.... ákvað að þetta sumar yrði lyfjalaust sumar og þrjóskast ég því við að taka þessi aumingjalyf. Mis góður árangur þó og er ég stundum að því komin að falla í gryfju lyfjanna... en ég reyni að þrauka.
Önnur ákvörðun; ætla að skella mér í skóla í haust, smá spænsku fjarnám með vinnunni.... spurning svo um að vera senjorita á Spáni eftir áramót þegar ég stefni á atvinnuleysisbæturnar..... Reyndar er ég alveg í fullri vinnu við það að reyna að vera gella með slegið hárið.... það er orðið svo sítt að ég gæti jafnvel fengið vinnu við sjampóauglýsingar þegar atvinnuleysið tekur við!!
Las í blaðinu um daginn að það er kominn sími á markað sem vegur það og metur hvort þú sért of full til að hringja í fólk. Ef áfengismagnið er yfir vissum mörkum þá getur maður ekki hingt í fyrirfram ákveðin númer.... alveg klárlega er það sími fyrir mig.
Svo eitt í lokin.... vill einhver ættleiða mig um miðjan ágúst þegar B10 verður yfirgefið og nýjir leigjendur taka við?? PLÍS....

Crazy
"Það sést í augunum á þér að þú ert klikkuð.... en þú brosir svo mikið að það skiptir ekki máli!!" (fékk að heyra þetta þegar talið barst að meintri geðveiki minni um helgina)Ræktin
Það er svo frábært að lesa blogg hjá fólki sem maður þekkir lítið eða ekki neitt..... fer stundum á svona bloggflakk og það er alveg merkilegt hvað stelpur skrifa mikið um ræktina og hvað þær séu duglegar að fara í ræktina:
Yess, ég er búin að missa tvö kíló í þessari viku og eins gott að þetta haldi svoleiðis áfram þar sem ég fór bæði út að hlaupa og í ræktina í gær. Annars hef ég verið rosalega ódugleg við nammibindindið og þegar ég kom heim í gær borðaði ég eitt súkkulaðistykki... eins gott að ég hlaupi þá bara tvöfalt á morgun. Verð að líta vel út í bikininu í sumar þegar ég fer til Costa de sol. Skrapp í ljós eftir ræktina í gær og það var svo geðveikt gott að liggja þarna og láta hugann reika..... skrapp svo í gufu eftir ljósin og er ekki frá því að ég hafi aðeins grennst við það. Svo hef ég ákveðið að byrja á danska kúrnum á mánudaginn. Þetta gengur ekki svona að ég sé dugleg í vinnunni og borða ekkert sætt þar en svo þegar ég kem heim þá úða ég í mig allskonar mat..... nú verður sko algjörlega breytt um lífstíl og ræktin tekin 5 sinnum í viku. Hef samt verið ógeðslega dugleg að fara og fer á hjólinu í staðin fyrir bílnum... já ég er sko geggjað dugleg...... bara losna við 5 kíló í viðbót og þá verð ég sátt!!
Daaaaaaa... ertu ekki að fokking grínast hvað þetta er fyndið, múhahahahaha

Versló
mánudagur
Liðveislan góða
Var ekki að nenna að vera í vinnunni á föstudaginn vegna þreytu og almennrar þynku... ég og sambýliskonan skelltum okkur aftur í bíó á fimmtudagskvöldið og sáum rétta mynd. Hituðum aðeins upp fyrir bíóið, í bíóinu og svo eftir bíóið.... drösluðumst heim einhverntíman seint og vöknuðum allt of snemma.
Svo var það Reykjavík með allri sinni rigningu og skemmtilegheitum. Skírnin var frábær og heitir litli stubburinn Vilhjálmur Bjarni Gíslason. Eftir mikið át og spjall við liðið voru Karen og Grjóni heimsótt í nýju íbúðina. Hitakútur var á svæðinu ásamt Fjólu, hennar manni og Lóu. Við tók Svínasúpan, bjórdrykkja, fótboltaspilið og duttum ég og Karen svona gjörsamlega í bull gírinn.... Byrjuðum á því að hringja í Birnuna og láta hana öfundast útí okkur (vinnualki!) og svo skutlaði Lóa okkur í bæinn en þurfti sjálf að fara snemma heim af því að hún á barn!!! Shitturinn titturinn mellan og hóran hvað var mikið stuð á okkur og geðveikin tók völdin... dönsuðum eins og þroskaheft par á Hressó, fórum á Celtic og hittum Freysa og Elfu sem ég hef ekki séð í hátt í 2 ár, hökkuðum einhverja stelpu í okkur og bulluðum hana svoleiðis í kaf að hún var gráti næst, lesbían ég var komin með 4 stráka sem ætluðu með mér heim.... allir í einu. Þeim fannst það bara töff að Karen skyldi vera með mig þarna í liðveislu og þótti ekkert tiltökumál þótt hún myndi koma með okkur heim í þeim tilgangi að horfa á!! Alveg merkilegt að fólk kippi sér ekkert upp við það þótt Karen segist fá borgað fyrir að hanga með mér... fólk horfir bara á mig og kinkar kolli með vorkunnar svip, hahahahaha!! Hitti stokkerinn minn tvisvar (sem er þrisvar sinnum of oft) og reyndi í seinna skiptið að fela mig á bakvið Karen..... heppnaðist svo innilega alls ekki, úfff. Datt í gírinn góða og byrjaði að hringja í fólk, syngja inná talhólfið og senda sms.... Slúttuðum kvöldinu svo á Hressó og löbbuðum lengstu leið í heimi heim.
Ekkert nema hressleikinn í gær.... knúsaði frændsystkinin í klessu og svo krúsað norður, rosalega er alltaf gott að koma heim :-)
Grjóni, ég þarf að komast á tónleika með Hitakút... bwahahahahahahahahaha!!