mánudagur
Vinnuböl
Þessi helgi var spes..... var að vinna á meðan allir aðrir hámuðu í sig snakki, helltu í sig bjór og horfðu á Eurovision. Ákvað að gera þetta bara almennilega. Þar sem ég var ein á Kaffi Ak tætti ég mig úr fötunum og dansaði nakin við hvert lagið á fætur öðru... Alveg þangað til fólkið fór að týnast inn.... ansi mikið af fólki þetta kvöld og skemmti ég mér bara fínt. Þannig að núna hef ég lokið síðustu vakt minni á Kaffi Akureyri... jájá, er hætt þessu bulli í bili allavega. Hef reyndar nú þegar tekið að mér nokkrar helgarvaktir en það er bara svo ég verði ekki stanslaust full í allt sumar!!
Hér er svo mynd af mér og manninum sem ætlar að giftast mér..... hmmmmmm!!
Dreymdi að ég væri byrjuð að vinna á Burger King... það var slæmt og sagði ég upp eftir korter.
Hér er svo mynd af mér og manninum sem ætlar að giftast mér..... hmmmmmm!!Dreymdi að ég væri byrjuð að vinna á Burger King... það var slæmt og sagði ég upp eftir korter.