<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur

Að heiman 

Já ég er rosalega dugleg að vera ekki heima þessa dagana, sambýliskonan og drengurinn alltaf í kærustuparaleik og ég svona á kantinum að fylgjast með og hvetja þau áfram.... vantar video-, göngutúra-, ís-, rúnts-, bíó- eða bara -hvaðsemer- partner!!
Skrapp í sund í gær og létt grillaði á mér skrokkinn. Með þessari sundferð náði ég að klára 10 tíma kortið sem ég verslaði fyrir 2 árum síðan, þetta er afrek :-)

Ákvað að hanga aðeins í tölvunni í gærkvöldi og setti inn nokkrar myndir frá B10 í vetur.... og góðu fréttirnar eru að við megum leigja þarna í sumar líka þannig að takið fyrstu helgina í júní frá fyrir grill, bjór, sól og sumar í B10..... Litlu jólin hjá Dallas takk fyrir :-)


Hann er enn á lausu stelpur mínar, bara hafa samband við mig.... Katrín Harðardóttir, umboðsmaður

This page is powered by Blogger. Isn't yours?