<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

Brunarúst 

Þvílík og önnur eins veðurblíða um helgina..... Sem betur fer vakti Birna mig í hádeginu á laugardaginn og skelltum við okkur í sund.... næstum því 4 tíma pottaferð og var afraksturinn rauðasta bringa í heimi (sem er held ég núna að breytast í brúnku!!). Svo var það að sjálfsögðu Brynja og að lokum snakk og bjór á tröppunum heima..... sweet :-)
Í vinnunni á laugardagskvöldinu var ég ekki uppá mitt besta.... reykurinn fer svo illa í mig þannig að augun voru eld rauð og ég vel brunnin á bringunni.... var meira að segja spurð að því hvort ég væri með einhvern ógeðslegann sjúkdóm!!! Já, holdsveiki :-)

Svo bara til að fræða ykkur aðeins... ef þið hafið ekki tíma til að borða morgunmat og hádegismaturinn tefst til svona 14:30 og það eina sem þú átt er tópspakki.... ekki úða honum í þig eins og þú eigir lífið að leysa..... það endar ekki með neinu nema magaverkjum og látum!!

... þetta er erfitt, enda er mánudagur!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?