<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

Ó borg mín borg 

Hef ákveðið að skella mér með Sólveigu frænku suður á laugardaginn..... flýg um morguninn og aftur heim um kvöldið. Bara rétt til að knúsa elsku litlu frændsystkinin mín og kíkja í eitt stykki útskriftarveislu :-) Það verður ekki leiðinlegt að hitta þessa snillinga sem eru í ættinni og hita upp fyrir ættarmótið sem verður eftir 1 ár og 3 mánuði!!

Svo er alveg spurning hvort ég og Sólveig verður ekki bara gjörsamlega á galeiðunni í Smáalim fram eftir degi.... tökum einhver góð múv, verslum fáránlegustu föt í heimi og mætum eins og gimp í veisluna til Hildar.... fengjum eflaust mörg stig frá móðursystrunum þá!!

Annars þá skrapp ég í bíó með Þóru og manni í gærkvöldi á Da Vinci Code.... það var alveg ljómandi fínt og svo í kvöld ætlar Þóra mín að koma til mín í mat og einhverja vitleysu... Ungfrú Ísland í sjónvarpinu og þá verður maður að hafa nóg af snakki, nammi og bjór.... já lofar góðu :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?