þriðjudagur
Beint flug
Þá hefst beina flugið frá Köben hingað til Akureyrar í kvöld.... að sjálfsögðu verð ég aðal gleðigjafinn á vellinum og er búin að hringja í helstu fjölmiðla landsins og biðja þá um að koma og taka myndir af mér. Bjössi mætir á svæðið með þessu fyrsta flugi og er ekki hægt að kvarta yfir því... sumarið er tíminn þar sem ég og litli fáum okkar árlegu flogaköst. Stefanía ætlar svo að fljúga með þessari frægu vél út til Köben þannig að það verður hægt að skála hægri vinstri í kvöld :-) Var svo í útvarpsviðtali áðan og gjörsamlega allt að gerast hjá þeirri Litlu, hehe.
Annars er ég orðin svo mikill FM-hnakki að ég fylli mig sjálfa viðbjóði.... að vísu fer ég ekki í ljós, á ekki Hondu með bassakeilum og dökkum rúðum, er ekki með ljóst sítt hár, er ekki anorexíusjúklingur, ekki með sílikon og er bara rétt tæplega hávaxin EN ég er farin að stylla útvarpið í bílnum á FM957 og syngja með þessum 5 lögum sem eru í spilun á þessari ógeðisrás.... það er nógu mikill viðbjóður fyrir mig og vil ég meina að ég sé virkilega langt leidd!!