<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur

Afmælispartý 

Þetta afmælispartý tók svo mikið á að röddin mín ákvað að yfirgefa mig um klukkan 3 á föstudagsnóttina og það er spurning hvort hún komi nokkuð aftur til baka.... ferlegt að vera svona raddlaus og þegar ég fór í bakaríið á laugardaginn þurfti ég að benda á það sem ég ætlaði að kaupa þar sem ég kom ekki upp orði! Afmælisveislan var algjör snilld og held ég að myndirnar segi allt sem segja þarf um það kvöld.

Hansína, einhver sæt ljóska, Nonni og Jóhanna í góðum gír :-) Einmitt, sæt ljóska... ég er ekkert sködduð eftir alla þessa umboðsvinnu. Er farin að horfa á stelpur eins og hinn versti karlmaður!

Ég og Steinunn fórum gjörsamlega á kostum þetta kvöld og er ég ekkert lítið ánægð með stelpuna hvað hún nennti að dröslast með mér á milli partýa, takk :-) En við tókum óendanlega margar sjálfsmyndir og ekki var leiðinlegt þegar Hreiðar mætti á svæðið.... við og fræga fólkið!!
(Var trend hjá Heidda að hafa augun lokuð.... hahaha)

Einmitt, lokuð augun í rokkarafílingnum.... góður


Jájá, bara myndir af mér að sjálfsögðu... skrapp í Kaffi Ak partý og knúsaði Rakel skvís!


Þetta er svo myndin sem verður notuð í auglýsingaherferðinni fyrir Snillinga ehf... Klárlega myndarlegasta fyrirtæki í heimi :-) Bolurinn hans Rögga segir allt sem segja þarf!!!


Kvöldið endaði ég svo uppí rúminu mínu með tveim fjall myndarlegum gaurum þar sem umræðuefnið var svo gróft að það kæmist ekki á þessa síðu þótt það yrði ritskoðað.... Fróðlegasta eftirpartý hingað til og flottur endir á góðu kvöldi :-)

Viljugum hesti vilja flestir ríða!!


This page is powered by Blogger. Isn't yours?