fimmtudagur
Stefnumót í Dallas
Í næstu þáttum af Dallas -Drama á Akureyri- verður rómantíkin í hávegum höfð.... Raggi fer á blind-date með nýrri sögupersónu þáttanna sem kallast "Lesandinn", Heiddi kynnist stúlku sem hann getur ekki hætt að hugsa um, Reynold og mamman ganga uppað altarinu, Gifta konan fer að renna gyrndar augum til Ragga og svo margt fleira... Góðar stundir.
Langt síðan ég hef farið á svona blind-date. Ferlega erfitt að vita ekkert út í hvað maður er að fara. En þessi stelpa lofar rosalega góðu, hún virðist hress og skemmtileg og það er það sem skiptir máli.... jájá, þessi innri fegurð! Er samt ekki að höndla það ef hún er jafn lítil og Umba, æi það verður bara krúttlegt :-) Má bara þakka fyrir að þetta sé virkilega kvenmaður... OK róa sig, þetta kvöld á eftir að vera stórkostlegt. Ég lít auðvitað alveg stór glæsilega út eins og venjulega og ef ég næ ekki að heilla stelpuna á lúkkinu þá kveiki ég bara á Johnny Cash röddinni og þá er ég svo sannarlega búinn að landa henni... Koma svo, þú ert aldrei stressaður fyrir stefnumót... þú átt heiminn og þú veist það Raggi!!
Jæja... best að skella sér í Fordinn og sækja ”Lesandann”!!!
Spennan er í hámarki; Hver er þessi "Lesandi" í raun og veru? Finnur Raggi loksins ástina? Ætli Umba sé samkynhneygð? Hvað ætli gerist í Bólugötu um helgina?