miðvikudagur
London/Gautaborg
Er mætt aftur í vinnu eftir ferlega gott páskafrí þar sem ég og Bjössinn fórum á kostum í London og svo í Gautaborg.Hittum helling af frægu liði á báðum stöðum... fórum út að borða með Stebba Hilmars á Burger King, sáum svo Jakab Björnsson (fyrrverandi bæjarstjóra) betlandi útá horni, Sophia Hansen á röltinu í soho, fengum okkur að borða með Eygló og Binna og Ingibjörg Sólrún í góðum gír á flugvellinum.... merkilegt þetta fræga fólk.
Fórum í túristaleiki, kappát, risa leiktækjasal og í leikhús á We will rock you.... söguþráðurinn var reyndar algjört bullshit og minnti einna helst á Latabæ en lögin og flutningurinn á þeim var stórkostlegur!!
Ég ætla bara að stoppa stutt á Akureyri í þetta skiptið þar sem ég er að fara suður aftur á morgun. Enn ein sýningin og í þetta skiptið verð ég til sýnis í Laugardalshöll á Norðurlands básnum eins og áður :-)... og já, það eru komnar myndir!!!