<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

Snjóaveturinn mikli 

Þakka mínu sæla að vera laus við að eiga bíl og búa það stutt frá vinnunni að ég nenni að labba þangað... að vísu er algjör viðbjóður að labba í þessu slabbi en það er þó skárra en að moka af bílnum og festa hann eins og svo margir eru blótandi yfir núna!!
Ég er að fara til Reykjavíkur um helgina.... í enn meiri bleytu, já mikil hamingja. Ef þið viljið hitta mig þá verð ég til sýnis gegn vægu gjaldi á Norðurlands-básnum í Fífunni á laugardaginn. Þetta verður reyndar stutt stopp þar sem ég læt mig ekki vanta í afmælið hans Adda á laugardagskvöldið..... allt fyrir djammið og ruglið á Akureyri :-)

Annars þá á ég auka miða í leikhús á morgun... einhvern sem langar að koma með mér??

This page is powered by Blogger. Isn't yours?