<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

Dallas -Drama á Akureyri- 

Næstur á dagskrá er þáttur númer 14.984 af Dallas -Drama á Akureyri- .... Þess má geta að þessi þáttur er ekki fyrir viðkvæmar sálir og hefur því staðháttum og nöfnum verið breytt. Góðar stundir.

... Af hverju þurftu þeir að tapa leiknum í kvöld? Andskotinn. Og Heiddi sem var búinn að undirbúa sig svo vel. Hann var gjörsamlega búinn að fá nóg af strákunum í liðinu og þjálfarinn var farinn að halda við mömmu hans, helvítis drullusokkurinn. Alveg skyldi hann hrynja í það í kvöld, allt til að lina þessar ógeðis tilfinningu sem var inní honum.... fyrstu 5 bjórarnir runnu ljúft niður við undirspil U2.
.... Raggi var líka hund fúll yfir tapinu fyrr um kvöldið en nennti ekki að drekkja sorgum sínum með Heidda. Enda átti Raggi planað stefnumót við fyrrverandi kærustu bróður síns... algjör skutla. Raggi fór því bara heim til sín í sturtu og gerði sig klárann fyrir deitið á meðan Heiddi hellti í sig. Kærastan hans Heidda dömpaði honum fyrir nokkrum vikum og hann var enn að reyna að jafna sig.... það var allt á móti honum.
.... Siggi, vinur Heidda og Ragga, var bara á rúntinum þetta kvöld. Það var sunnudagur og svo sem ekkert annað að gera, enda á hann svo flottan bíl að það er um að gera að sýna hann. Heiddi hringdi í Sigga uppúr miðnætti og bað hann um að koma og drekka með sér. Þar sem Siggi er sannur vinur fórnaði hann sér fyrir félagann og enduðu þér tveir saman á kojufyllerýi langt fram á nótt.
.... Á meðan var Raggi í góðum gír með sinni dömu og fór á skikkanlegum tíma í háttinn. Enda þurfti hann að vakna snemma næsta morgun því hann var búinn að lofa Sue Ellen að fara með henni í sund strax klukkan 7... já það er ekki auðvelt að vera myndarlegur.
.... Eftir því sem Heiddi og Siggi drukku meira því geðveikari hugmyndir fóru að fæðast í hausnum á þeim. Að lokum ákváðu þeir að hringja í gifta konu út í bæ og þykjast vera Raggi. Símtalið var í grófari kanntinum þar sem Heiddi þóttist vera ástfanginn af konunni og gæti hreinlega ekki lifað án hennar.... Heiddi og Siggi hlógu sig gjörsamlega máttlausa yfir þessu djóki.

.... Daginn eftir vaknar Raggi snemma og fer í sund með Sue Ellen... þau hafa það kósý í pottinum þegar fyrrverandi mágkona stelpunnar mætir með pabba hennar uppá arminn. Aumingja stelpan var alveg í sjokki og þurfti Raggi að drífa sig með hana úr sundi. Loksins komst hann í vinnuna og vonaði að þar með væri hann laus við allt vesen, allavega fram að kvöldmat.
.... Á annarri skifstofu út í bæ situr fyrrverandi samstarfsfélgi Ragga, Umba, og skipuleggur hátíðarkvöldverð fyrir forsetann þegar síminn hennar hringir. Það er kona í símanum sem varð víst fyrir því óláni að fá hringingu frá Ragga um nóttina þar sem hann tjáði konunni ást sína. Konan var alveg brjáluð, hún kærði sig sko ekki um svona dóna símtöl og sérstaklega ekki þar sem hún er gift kona... algjörlega á öndverðu meiði þessi Raggi!! Konan skammaði líka Umbu fyrir að hafa látið Ragga fá númerið hjá sér en ekki kannast Umba við það.... sérstaklega ekki þar sem hún hefur ekki hugmynd um hver þessi kona er. Þar sem Umba hefur alltaf náð virkilega vel til Ragga var hún vinsamlegast beðin um að tala við kauða og koma vitinu fyrir hann... sjálf ætlaði konan líka að hringja í hann og skamma hann, bara til öryggis!!
.... Þegar Raggi heldur að hann nái að komast í gegnum dramalausan vinnudag hringir síminn. Gifta konan úðar yfir hann skömmum, hvað hann sé eiginlega að pæla og af hverju í andskotanum hann hafi verið að hringja í sig svona að nóttu til, blind fullur og hún sem þekkir hann ekki einusinni. Umba hringir í Ragga til að komast til botns í þessu máli... hann segist saklaus og að sjálfsögðu trúir hún honum.... vel upp alinn drengurinn. Bibba, vinkona Umbu, hringir svo í Umbu til að fá að vita hvað sé eiginlega í gangi. Gifta konan enn í sárum og einhverra hluta vegna þekkir hún Bibbu... allt er komið í kross og enginn veit neitt. Hver hringdi í hvern og sagði hvað... hver er eiginlega giftur hverjum??
.... Á meðan liggja Heiddi og Siggi í þynku með hamborgara í annarri og símann góða í hinni. Góður símahrekkur þetta :-)

..... í næsta þætti af Dallas -Drama á Akureyri- fáum við að fylgjast með viðbrögðum Ragga þegar hann kemst að því hver gerði þennan hrekk. Ætli Sú Ellen verði sátt við það að vita að Raggi sé að hringja í aðrar konur eða ætli hún hlusti á Bibbu og hætti að hugsa um kauða? Hvað verður um giftu konuna og hvað gerir Umba í þessu öllu saman? Ætli hún höndli álagið.... en Raggi??

Þetta... og svo margt annað :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?