þriðjudagur
Fyrsta kynningin
Eins og maður lærir í Háskólanum er nauðsynlegt að þekkja vöruna áður en maður fer að selja hana... þú þarft að vita hverjir kostir hennar og gallar eru og kunna að draga fram það besta í vörunni. Það má nú samt ekki algjörlega gleyma göllunum því eins og allir vita þá er ekkert fullkomið.
Þegar ég fór út í þessa markaðssetningu á manneskjum gerði ég mér fyllilega grein fyrir þessum hlutum.... ég vil ekki meina að ég sé að selja manneskjuna (því það kallast vændi og er ólöglegt á Íslandi) heldur er ég frekar að koma henni á framfæri, kynna hana og leyfa öðrum að njóta góðs af. Ég vil ekki setja manneskjuna uppí excel skjal þar sem kostir hennar og gallar eru flokkaðir niður eins og rollur eru dregnar í dálka.... það sem sumum finnst sjarmerandi og kynþokkafullt fyllir aðra viðbjóði.
Ég vil meina að fyrsta viðfangsefni Snillinga ehf. sé eitthvert það besta vörumerki sem hægt er að vinna með og hvet ég því keppanda númer tvö eindregið til að kynna sér vöruna betur áður en hún segir sig algjörlega úr keppni... það er til umræðu að halda kynningarfund þar sem varan er afhjúpuð og hún kynnt almennilega... nánara fréttabréf er væntanlegt en búist er við að sú kynning verði haldin í Sundlaug Akureyrar eða í B10 yfir trivial og bjór!!
Þakka fyrir mig að sinni,
Katrín Harðardóttir, umboðsmaður!