þriðjudagur
Berklahæli
OK, æðislegt!! Þegar þau voru búin að heilaþvo fólk með þessum klassíska ekki-borða-pasta-kartöflur-brauð-kex-hrísgrjón-sykur-eða-hveiti-pistli þá voru þau voða sniðug og fóru að elda.... Korn í tómatsósu.....What the fuck!!!! Ekki veit ég hvort þetta átti að vera ógeðslega girnilegt eða hvað, en þetta var einhver sá mesti viðbjóður sem ég hef séð. Já, og svo ætla þau í heimsókn til offitusjúklinga og kenna þeim að borða korn og bíta gras... já og örugglega æla líka, smart!!
Ég læt ekki bjóða mér uppá svona rusl í sjónvarpinu... stóð upp og fékk mér afgang af saltkjötinu, það er sko alvöru :-)
Annars þá hefði ég alveg eins getað farið í hjúkrun... líður eins og ég vinni á berklahæli. Gjörsamlega allir hóstandi í kringum mig og horið og slefið alveg í hámarki!!
mánudagur
Nóg af hori allavega
Aaaallavega..... búin að bjarga páskunum. Jájájá, var að spjalla við Bjössann á laugardaginn og að lokum var ég búin að versla mér flug og gistingu í London :-) Ætla að hitta kappann þar, við fljúgum svo til Gautaborgar, förum í dagsferð til Osló og svo flýg ég heim frá Köben.... það er vel!!!
föstudagur
Guð minn góður, guð minn góður, guð minn góður!!!
... maður mætir að sjálfsögðu í allar vísindaferðir sem boðið er uppá í bankanum. Rétt skrapp yfir í bankann um sex leytið í gær, svona til að sýna lit og já auðvitað til að fá smá frían bjór.
... Svona um hálf níu hentist ég heim og hafði á orði við nokkra vel valda einstaklinga að þeir væru velkomnir í B10 í smá meiri bjórdrykkju þar sem ég átti svo ógeðslega mikið af bjór!!
... Ég og vörumerkið í góðu glensi með gítarinn, bjórinn og fótboltaspilið. Ákváðum að senda nokkur sms... náðum að róa keppanda númer 2 og ég svona eiginlega rak Birnu úr fyrirtækinu... já þetta er alvöru dramakeppni! Svo bættust fleiri í hópinn og ákveðið var að fara á Amour. Fín hugmynd það og góður stemmari.
... Svo fóru að hrúgast inn mis góðar hugmyndir. Auðvitað var eftirpartý í B10 þar sem þessar 6 kippur sem við áttum kláruðust og besta eftirpartý sögunnar fór fram. Dramað hélt áfram og ég rak vörumerkið líka úr keppni, afskrifaði hann sem vin minn, lagði þetta fyrirtæki niður, sendum full mikið af dónalegum sms-um og fleira skemmtilegt... jájájá bara snilld, alveg þangað til ég vaknaði eftir þennan tveggja tíma svefn og ruslaðist í vinnuna!! Kommmon, það var fimmtudagur!!!!
... Ekki koma í bankann í dag, það gerir ykkur ekkert gott. Nema Hreiðar er auðvitað velkominn í súkkulaðið :-)
..... Yndislegt að vera umkringd svona frábæru fólki sem er tilbúið að lifa lífinu gjörsamlega í ræmur!!
Ég elska Rögga, kiss kiss ;-)
fimmtudagur
Litla veika....
Rosalegt þegar maður er svona lasinn þá getur maður velt sér endalaust uppúr hlutunum... ekkert annað að gera nema hanga uppí rúmi og hugsa. Var að pæla í að koma með pistil um karlmenn... hef hugsað mikið um þann kynflokk síðustu vikur og er engu nær. Held að þetta séu allt saman aumingjar og ónytjungar upp til hópa. Lygarar og vangefin djöfullsins grey.... hey, það eru til undantekningar en þær eru ekki til umræðu hér!! Jájá, kallið mig bara Miss Bitur... það hentar mér ágætlega.
Búin að setja inn nokkrar myndir frá helginni....mánudagur
Tvíburar verða til við getnað
Reykjavíkurferðin var ansi mögnuð...
- Eftir að hafa tæklað allar sjoppurnar á leiðinni suður og tæmt helstu spilakassa landsins eyddi ég föstudagskvöldinu í faðmi fjölskyldunnar á Kapló.
- Vöknuðum virkilega snemma á laugardaginn, skelltum okkur í bakarí og fórum í heimsókn til Lóunnar..... litla daman ekkert smá sæt og bræddi okkur allar :-)
- Svo var það að versla.... Harpa tók þetta mjög alvarlega og verslaði grimmt. Tókum okkur smá pásu um miðjan daginn til að fá okkur pizzu og bjór. Héldum aðalfund Snillinga ehf í leiðinni. Harpa og Líney fengu að vera viðstaddar, önnur sem ritari en hin sem vitni. Eftir góða pásu á Pizza hut þar sem ein tregasta manneska mannkynssögunnar vinnur var haldið áfram að versla.... eða Harpa hélt áfram að verlsa!
- American Style... jammm, fórum bara til Reykjavíkur til að borða. Karen og Fjóla slóust í hópinn og finnst mér í raun óskiljanlegt að við höfum ekki verið reknar út af staðnum... en diskurinn minn kom með okkur heim!!
- Júró partý hjá Líney þar sem fjölgaði enn í hópnum.... versluðum Tópasflösku sem rann ljúft niður ásamt bjórnum sem við tókum með okkur í nesti frá Akureyri. Meira endemis ruglið sem fór fram í íbúðinni hennar Líneyjar... what happened in the appartment, stays in the appartment :-)
- Ég og Birna vorum samferða heim úr bænum... nenntum nú ekki eyða klukkutíma í að standa í röð þannig að við redduðum okkur fari með einhverjum gutta... Birna fékk mörg prik hjá kauða þar sem hún sagði honum að hún væri lögga og í landsliðinu í blaki og hokkí. Ég þótti frekar ómerkileg þar sem ég er bara ég en Birna ákvað að fegar þetta aðeins og sagði að ég væri í landsliðinu í handbolta.... moohahahahah, virkilega trúlegt það!! Guttinn rukkaði okkur svo um 2.000 kall, þvílíkt og annað eins. Reyndum smá samningarviðræður en kauði stóð fastur á sínu... sagði þetta fína auka vinnu, græðir allavega helling á þessu drengurinn!
- Svo hófst dramað fyrir alvöru.... keppandi númer tvö hringdi og sagði sig úr keppni, aftur!! Keppandi númer eitt sendi sms og sagðist ekki kæra sig um að vera í þessari keppni. Vörumerkið sjálft hringdi og tilkynnti mér að hann hefði húkkað einhverja stelpu á föstudagskvöldið og er greinilega ekki að taka þessa keppni nógu alvarlega!! Þetta gekk allt svo miklu betur þegar keppendurnir vissu ekki að þær væru í þessum pakka.... krap!!
- Rifum okkur snemma á fætur í gær og drulluðum okkur aftur til Akureyrar... home sweet home :-)
- Í dag er ég svo virkilega kvefuð.... með berklahósta, nefrennsli og hellur.
Tók helling af myndum sem koma hingað inn innan skamms, en þangað til....
fimmtudagur
Elliheimili
Eftir 40 mínútur í þessu litla herbergi, fullu af gömlu fólki, loka ég trékassanum, tek reiknivélina úr sambandi, pakka afgangnum af peningunum ofan í tösku og held aftur niður í banka, það heldur ennþá áfram að snjóa.
Ég ætla aldrei að verða gömul....
þriðjudagur
Fyrsta kynningin
Þegar ég fór út í þessa markaðssetningu á manneskjum gerði ég mér fyllilega grein fyrir þessum hlutum.... ég vil ekki meina að ég sé að selja manneskjuna (því það kallast vændi og er ólöglegt á Íslandi) heldur er ég frekar að koma henni á framfæri, kynna hana og leyfa öðrum að njóta góðs af. Ég vil ekki setja manneskjuna uppí excel skjal þar sem kostir hennar og gallar eru flokkaðir niður eins og rollur eru dregnar í dálka.... það sem sumum finnst sjarmerandi og kynþokkafullt fyllir aðra viðbjóði.
Ég vil meina að fyrsta viðfangsefni Snillinga ehf. sé eitthvert það besta vörumerki sem hægt er að vinna með og hvet ég því keppanda númer tvö eindregið til að kynna sér vöruna betur áður en hún segir sig algjörlega úr keppni... það er til umræðu að halda kynningarfund þar sem varan er afhjúpuð og hún kynnt almennilega... nánara fréttabréf er væntanlegt en búist er við að sú kynning verði haldin í Sundlaug Akureyrar eða í B10 yfir trivial og bjór!!
Þakka fyrir mig að sinni,
Katrín Harðardóttir, umboðsmaður!
mánudagur
Árshátíð/afmæli
Dinner á Carólínu og fullt af skemmtiatriðum þar sem hver og einn var krýndur eitthvað ferlega skemmtilegt.... var ég kjörin Miss Pósa (já, skrýtið) og Þóra mín fékk titilinn Miss Ritalin (fólk er mis ofvirkt!!). Skelltum okkur svo á Kaffi Ak að sjálfsögðu í trylltan dans og eintóma gleði.

Vaknaði snemma á laugardaginn til að hjálpa til uppí Akurgerði. Veislan þar heppnaðist alveg ótrúlega vel, það er af því að ég á svo mikið af ógeðslega skemmtilegum ættingjum. Taumlaus gleði langt fram á nótt þar sem var mikið sungið og dansað :-) Sólveig snillingur átti setningu kvöldsins þar sem við sátum og fylgdumst með liðinu.... "Þetta er eins og að vera á Papaballi þar sem maður er dansaður niður af miðaldra fólki!!"
Í gær var svo annar í afmæli þar sem afgangar voru borðaðir og restin af rauð- og hvítvíninu.... 17 manna matarboð og gleðin var ekki síðri :-)
Ég skellti mér nú í bæinn í smá stund á laugardagsnóttina og hitti Birnu og Hansínu.... Umboðsmennskan okkar Birnu er eins og hver önnur keppni, full af drama. Á mjög formlegan hátt tilkynnti keppandi númer tvö mér það að hún væri búin að draga sig úr keppninni sem Ms. Johnsen.... Ekki nógu gott mál en við tökum á þessu eins vel og við getum!!
Nú er hinn grámyglulegi veruleiki aftur tekinn við og lífið dröslast áfram..... Barna-og menningarferð um næstu helgi!!!
föstudagur
Allt að gerast um helgina
Morgundagurinn verður magnaður þar sem gamli maðurinn á afmæli í dag... jájájá, kallinn orðinn 60 ára og ætlar að slá upp veislu í Akurgerðinu. Verður vissara að taka með sér eyrnatappa í þá samkomu þar sem mamma og allar hennar systur verða staddar á sama stað, en ekkert lítið sem ég hlakka til :-) Það er allt að gerast!!
Spurning hvort ég sé komin með holdsveiki þar sem neglurnar á tánum eru farnar að detta af... ekki smart!!
miðvikudagur
Innantómt
Andleysið, vonleysið, eyrðarleysið og getuleysið er enn allt til staðar....
mánudagur
Lengsta meðganga í heimi
Innilega til hamingju með stelpuna og ég hlakka ekkert lítið til að koma suður 17. feb og knúsa ykkur í klessu og djamma með nýjasta meðliminum :-)
Annars var þetta lengsta meðganga sem ég hef nokkurtíman upplifað. Finnst eins og Lóa sé búin að vera ólétt í eins og 2 ár. Hef fylgst með þessu alveg frá getnaði og var sennilega orðin jafn þreytt og Lóa að bíða eftir litla krílinu.... eða svona næstum því! Stúlkan loksins komin í heiminn og ég brosi hringinn.
- Kate Bush, umboðsmaður og ógeðslega stolt vinkona :-)
Laaaangt blogg
Ákveðið var að taka keppanda númer tvö með á galeiðuna. Því miður var Rögnvaldur ekki í bænum (var að redda þessum 300.000 kalli sem bankafólkið fær 1.mars) þannig að formleg kynning gat ekki farið fram.... en keppandi númer tvo er virkilega áhugasöm :-)
Ég og sambýliskonan höfum ákveðið að skella okkur í barna-og menningarferð helgina 17-19 feb... jájájá. Þá verður sko dansað :-) Vonumst til að undirmaðurinn og Hanne sjái sér fært að fara með okkur.... allir í borg dauðans að taka helgina frá!!
Undirmaður minn ákvað að klukka mig... næs, þannig að það er best að enda á því
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
- Rokkað í Sundlauginni
- Pínt lítil börn á leikskóla
- Fengið borgað fyrir að spila með Sinfoníuhljómsveit Norðurlands
- Landsbankinn, þar eru höfuðstöðvar Snillinga ehf!!
Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
- Sódóma Reykjavík
- Just friends
- Keipps.... dettur bara þessar tvær í hug þar sem ég get horft á þær meira en endalaust oft
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
- Akureyri
- Reykjavík
- Brisbane
- Melbourne
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
- Scrubs
- 70´s show
- Friends
- My so called life..... Jaret Leto.....*SLEF*
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Ástralía
- Slóvenía
- Feneyjar
- Bretland
Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan blogg):
- mbl.is
- kaffiakureyri.is
- lonelyplanet.com
- business.vu.edu.au
Fernt matarkyns sem ég held uppá:
- Kjöt
- Kjöt
- Kjöt
- Kjöt
Fjórar bækur sem ég les oft:
- Það er í lagi að vera lítill
- Forðist okkur
- Sénsinn að ég lesi sömu bókina oft
- Ljóta vitleysan
Fjórir staðir sem ég myndi heldur vilja vera á núna:
- Í risa verslunarmiðstöð
- Í Ástralíu
- Í sjóðandi heitu baði
- Í góðu partýi með snillingunum mínum
Fjórir bloggarar sem ég klukka:
- OK þar sem ég frétti alltaf allt síðust þá er þessi leikur sennilega löngu búinn að missa kúlið, þannig að.....
Endum þetta á mynd af Snillingum ehf með keppanda númer tvö :-)föstudagur
Rosalegur brannsi
Ég mæli svo sannarlega með okkur :-)
fimmtudagur
Sambýlið
Annars er allt í góðum gír.... maður dröslast áfram og bíð ég bara eftir símtali frá henni Hörpu Hrönn (engin pressa elskan.... veldu mig!!! hahaha). Ætla að vinna á laugardagskvöldið en eyða morgundeginum/kvöldinu í almennt chill.
Mér finnst eins og ég sé að vinna á sambýli, og þá meina ég af því að það er svo mikið af aumingjum sem safnast í bankann bara til að fá sér kaffi eða hanga yfir mér og tala út í eitt um gjörsamlega ekki neitt... Tinna benti hinsvegar á að þar sem ein Kata, einn Rögnvaldur og ein Tinna vinna, þar er sambýli :-) Mikið til í því!!