mánudagur
Meira ruglið á manni alltaf
Þetta bankadjamm var ekkert nema gargandi snilld... eftir mikla gleði og rosa drama niður í banka var að sjálfsögðu haldið heim til mín.... pöntuðum helling af pizzum og sjaldan hef ég séð jafn mikið af bjór!!! Meiriháttar og ekkert annað. Allir í tómu rugli og fótboltaspilið slóg í gegn að vanda.
Fórum á Kaffi Akureyri og náði ég að troða mér á nokkrar myndir þar.... smá sýnishorn :-)
Ég og Tinna með Lalla.... ánægður með þetta kallinn!!
Tja... ekki veit ég hvaða maður þetta er.
Eftir enn meira drama, trylltan dans, eintóma gleði og full mikið af tópasskotum ákvað ég að koma mér í rúmið. Eftir að hafa legið uppí rúmi í svona 10 mín er ráðist inn til mín, ég hrist til og frá og vinsamlegast beðin um að koma fram í stofu í eftirpartýið.... já, elsku Binni og Hlynur voru mættir ásamt Balla og einhverri fyllibyttu. Dröslaðist á náttfötunum fram í stofu... þeir eru yndislegir þessar elskur. Addi kom svo smá til að gefa mér eitt gott knús og svo eftir að ég var komin aftur uppí rúm komu Binni og Hlynur nokkrum sinnum til að tékka á mér.... endalaus hamingja.
Dröslaðist á fætur uppúr hádegi með einhvern þann ógeðslegasta hausverk sögunnar, fann Binna uppí sófa og spjallaði við kauða sem var án efa ennþá alveg svartur. Dagurinn í bankanum var erfiður. Birta og Bárður úr Stundinni okkar eru ekki einstaklingar sem ég get hlustað á þegar ég er þunn.... hvað þá í bland við endalaus læti í einhverjum krökkum! En ég setti bara upp brosið og dröslaðist í gegnum þetta.
Slúttaði svo helginni á bíóferð með nokkrum snilldar bankaeinstaklingum og sá Just friends aftur!!! Hló meira en síðast og get ekki beðið eftir að hún komi út á spólu... mohahhaha.
Fórum á Kaffi Akureyri og náði ég að troða mér á nokkrar myndir þar.... smá sýnishorn :-)
Ég og Tinna með Lalla.... ánægður með þetta kallinn!!
Tja... ekki veit ég hvaða maður þetta er.Eftir enn meira drama, trylltan dans, eintóma gleði og full mikið af tópasskotum ákvað ég að koma mér í rúmið. Eftir að hafa legið uppí rúmi í svona 10 mín er ráðist inn til mín, ég hrist til og frá og vinsamlegast beðin um að koma fram í stofu í eftirpartýið.... já, elsku Binni og Hlynur voru mættir ásamt Balla og einhverri fyllibyttu. Dröslaðist á náttfötunum fram í stofu... þeir eru yndislegir þessar elskur. Addi kom svo smá til að gefa mér eitt gott knús og svo eftir að ég var komin aftur uppí rúm komu Binni og Hlynur nokkrum sinnum til að tékka á mér.... endalaus hamingja.