<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

Betri í dag en í gær 

Það er allt betra í dag en í gær... nema kannski baugarnir. Sjaldan verið jafn dökkir og djúpir. Ég lít í alvörunni út eins og sprautufíkill. Verð að redda mér einhverju undra baugabana fyrir kvöldið þar sem það er kokteilboð í bankanum. Sennilega ekki vel séð að það sé meintur fíkniefnaneytandi að vinna við þessa annars ágætu stofnun...
Ætlunin er að ferja partýið svo yfir á einhvern annan stað..... jafnvel B10 og kenna þessum forstjórum og snobbköllum úr Reykjavík að djamma almennilega. Búsist er við 250 manns í bankann í kvöld þannig að þetta verður almennilegt. Svo verður Auður gella 30 á morgun þannig að það er enn betri ástæða til að hella í sig!!
Á morgun er svo fjölskyldudagur í bankanum. Fínt að vera þunn og tussuleg þar. Þarf að vera á svæðinu og gefa krökkunum einhverjar gjafir... það verður fjör.

.... en góða helgi enn eina ferðina!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?