<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur

Bara vinir 

Skrapp með Bjössa og Hörpu í bíó á sunnudaginn.... fínt að fara í fjögur bíó því þá kostar bara 400 kall!! Horfðum á Just friends og er þetta fyndnasta mynd sem ég hef séð leeeengi. Við láum í hláturskasti nánast alla myndina og það er alveg möst að fara aftur um næstu helgi.... illa sjúkur húmor!!
Fór líka á hokkíleik á laugardaginn... það var kalt. Birna mín var að keppa og þetta var hin fínasta afþreying. Keipps, þá er ég búin að skanna helgina.... áhugavert ekki satt? Spilaði reyndar Trivial á föstudagskvöldið, tölvan okkar byrjaði að tala og ég og Bjössi vorum bara í ruglinu á laugardagskvöldið... þessi venjulega helgi!

Annars vil ég óska Þóru til hamingju með að vera komin áfram í hjúkkunáminu... er rosa stolt af stelpunni minni :-)

.... já, andlaus og sennilega getulaus líka!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?