fimmtudagur
Skírnarafmæli
Alveg skil ég ekki af hverju fólk getur ekki dröslast til að kynna sig í síma. Sérstaklega þegar það hringir eitthvert sem það er ekki vant að hringja. Var hjá þeim gömlu um daginn og svaraði í símann með nafni.... það var kona á hinum endanum sem sagði einfaldlega halló. Ég var sannfærð um að þetta væri vinkona mömmu og kem með þetta líka rosalega BLESSSSSUÐ til baka á hana (hef aldrei verið góð í að greina raddir í fólki). Eitthvað fannst mér málrómurinn í henni breytast við það þannig að ég skipti um skoðun og hélt að þetta væri frænka mín í Reykjavík sem ég heyri sjaldan í...... fór að spyrja hvort hún hefði það ekki gott yfir jólin og svona almennt spjall. Reyndar fannst mér konan ferlega þurr á manninn og því var ég ekki svo viss um að þetta væri þessi frænka þegar hún svo loksins spurði hvort Hörður væri heima (bara fólk sem þekkir pabba ekki vel kalla hann Hörð... og by the way, hún hló!!)... jájá hann er heima og vertu blessuð, virkilega gaman að heyra í þér! Ég kallaði á pabba og um leið og Bjössi spurði hver þetta hafi eiginlega verið þá fattaði ég að ég hafði ekki hugmynd um það. En spjallaði samt svona líka rosalega við þessa konu eins og hún væri vinkona mín..... pabbi kom svo úr símanum og tilkynnti mér að þetta hefði verið einhver Borghildur!!! What.... af hverju gat hún ekki ælt því útúr sér strax og ég sloppið við að gera mig að fíbbli, fjör!!
Er búin að sætta mig við það að þurfa að vinna á gamlárskvöld. Ég og Þóra djömmuðum neflilega tvöfalt í fyrra þannig að það er í lagi að sleppa því þetta árið... svo verður þessi elska líka að vinna með mér þannig að þetta verður bara fjör :-)
Annars þá á ég 25 ára skírnarafmæli í dag!! Í því tilefni ætlar Hildur móða að halda matarboð í kvöld og skála fyrir mér... eða ekki.