miðvikudagur
Örverpið
Ótrúlegt en satt þá dröslaðist ég til að skrifa nokkur jólakort. Held að það hafi ekki gerst síðan í barnaskóla þegar við vorum skikkuð til að drita einhverju niður á blað.... en ég semsagt rumpaði þessu af á hálftíma og er nokkuð sátt við það. Það er hinsvegar annað mál hvort ég komi þessum kortum í póst.... ég hef enn nokkra daga, ekkert stress.
Bankinn gaf mér jólamatinn þannig að ég þarf ekkert að fara í matarbúð og svo hef ég alveg sloppið við að fara á Glerártorg þar sem bændurnir og gamla fólkið safnast saman. Þetta gerist ekki betra. Að lokum hefur svo sambýliskonan flúið land þannig að ég er bara ein í B10 um þessar mundir.....
Bjössi er kominn heim og toppar þetta alltsaman :-)