þriðjudagur
Hvað er málið
Ekkert voðalega jolly yfir því að þurfa að vinna alla þessa viku og það var ekki tekið út með sældinni að dröslast á fætur í morgun. Hafði það samt rosa gott þessa daga sem ég gat legið og étið og er gjörsamlega uppgefin eftir það allt... merkilegt hvað það tekur á að gera ekki neitt nema borða!
Völva Vikunnar er annað sem ég er ekki alveg að gúddera.... sagði í fréttunum í gær að Völvan spáði því að annað hvort munu vextir á árinu hækka eða lækka, verðbólgan mun annað hvort minnka eða aukast og veðrið verður gott og slæmt.... massa spá þetta!!
Karen, Grjónið, Fjóla, Líney og Guðbjörg mættu til mín í gærkvöldi ásamt fullt af frægu fólki... skemmtum okkur konunglega og erum ég og Fjóla heimsmeistarar í fótboltaspilinu :-) Allt í einu var íbúðin mín full af einhverjum konum sem sögðust vera frænkur Fjólu, vinkonur frænku Fjólu og eitthvað álíka.... voru bara í ruglinu þannig að það var tími til að yfirgefa svæðið og halda í bæinn.
Annars er það merkilegasta að ég er að fara á Rolling stones tónleika 10.júní 2006!!!!!