<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

Þetta geðveika lið 

Er stundum sett í gjaldkerastúkuna og í dag er einn af þeim dögum... kalla á hvern viðskiptavininn á fætur öðrum.
Næsti gjörðu svo vel (fyrir framan mig stendur maður sem kemur oftar en ekki í bankann. Hann er mjög þunglyndur og talar aldrei neitt)
Hann ælir út úr sér kennitölunni og hvað hann ætli að taka mikið út. Þarna hélt ég að ég myndi bara láta hann kvitta og afhenda honum þessa þúsundkalla sem hann tók út.... nei, hann ákvað að láta spurningarnar dynja á mér á þessum stutta tíma sem hann stóð þarna fyrir framan mig.

Ertu hress í dag?
Ertu farin að hlakka til jólanna?
Ertu byrjuð að skreyta?
Ertu byrjuð að baka?
Áttu íbúð?
Áttu mann?
Áttu krakka?
Býrðu ein?
Hvað ertu gömul?

Þessum spurningum svaraði ég samviskusamlega en var alveg að springa úr hlátri um leið... einhver snar klikkaður kall að spyrja mig svona snubbóttra spurninga og það hlakkaði í honum þegar ég sagðist vera einhleyp.... nei félagi ég er ekki svo illa sett!!

Kvaddi mig nú á því að segja að ég ætti að halda áfram að vera svona brosmyld því þá færi vel fyrir mér í framtíðinni... flott.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?