<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

No longer a Subway virgin 

Merkilegt nokk... fór með bankagellunum á Subway áðan og keypti þar með minn fyrsta Subway bát!! Hef alltaf haldið því fram að Subway sé of hollur matur fyrir mig, svona löðrandi í grasi og fitulausu kjöti, en ég hef skipt um skoðun.... fullorðin maður!

.... Gleðilegt ár og allir að koma á Kaffi Ak annað kvöld :-)

fimmtudagur

Skírnarafmæli 

Alveg skil ég ekki af hverju fólk getur ekki dröslast til að kynna sig í síma. Sérstaklega þegar það hringir eitthvert sem það er ekki vant að hringja. Var hjá þeim gömlu um daginn og svaraði í símann með nafni.... það var kona á hinum endanum sem sagði einfaldlega halló. Ég var sannfærð um að þetta væri vinkona mömmu og kem með þetta líka rosalega BLESSSSSUÐ til baka á hana (hef aldrei verið góð í að greina raddir í fólki). Eitthvað fannst mér málrómurinn í henni breytast við það þannig að ég skipti um skoðun og hélt að þetta væri frænka mín í Reykjavík sem ég heyri sjaldan í...... fór að spyrja hvort hún hefði það ekki gott yfir jólin og svona almennt spjall. Reyndar fannst mér konan ferlega þurr á manninn og því var ég ekki svo viss um að þetta væri þessi frænka þegar hún svo loksins spurði hvort Hörður væri heima (bara fólk sem þekkir pabba ekki vel kalla hann Hörð... og by the way, hún hló!!)... jájá hann er heima og vertu blessuð, virkilega gaman að heyra í þér! Ég kallaði á pabba og um leið og Bjössi spurði hver þetta hafi eiginlega verið þá fattaði ég að ég hafði ekki hugmynd um það. En spjallaði samt svona líka rosalega við þessa konu eins og hún væri vinkona mín..... pabbi kom svo úr símanum og tilkynnti mér að þetta hefði verið einhver Borghildur!!! What.... af hverju gat hún ekki ælt því útúr sér strax og ég sloppið við að gera mig að fíbbli, fjör!!

Er búin að sætta mig við það að þurfa að vinna á gamlárskvöld. Ég og Þóra djömmuðum neflilega tvöfalt í fyrra þannig að það er í lagi að sleppa því þetta árið... svo verður þessi elska líka að vinna með mér þannig að þetta verður bara fjör :-)

Annars þá á ég 25 ára skírnarafmæli í dag!! Í því tilefni ætlar Hildur móða að halda matarboð í kvöld og skála fyrir mér... eða ekki.

þriðjudagur

Hvað er málið 

Ekkert voðalega jolly yfir því að þurfa að vinna alla þessa viku og það var ekki tekið út með sældinni að dröslast á fætur í morgun. Hafði það samt rosa gott þessa daga sem ég gat legið og étið og er gjörsamlega uppgefin eftir það allt... merkilegt hvað það tekur á að gera ekki neitt nema borða!
Völva Vikunnar er annað sem ég er ekki alveg að gúddera.... sagði í fréttunum í gær að Völvan spáði því að annað hvort munu vextir á árinu hækka eða lækka, verðbólgan mun annað hvort minnka eða aukast og veðrið verður gott og slæmt.... massa spá þetta!!

Karen, Grjónið, Fjóla, Líney og Guðbjörg mættu til mín í gærkvöldi ásamt fullt af frægu fólki... skemmtum okkur konunglega og erum ég og Fjóla heimsmeistarar í fótboltaspilinu :-) Allt í einu var íbúðin mín full af einhverjum konum sem sögðust vera frænkur Fjólu, vinkonur frænku Fjólu og eitthvað álíka.... voru bara í ruglinu þannig að það var tími til að yfirgefa svæðið og halda í bæinn.

Annars er það merkilegasta að ég er að fara á Rolling stones tónleika 10.júní 2006!!!!!

föstudagur

Þorláksmessa 

Gott að byrja daginn á því að opna risa stórann konfektkassa og troða í sig súkkulaði... þessi banki klikkar ekki. Verður svo S-Kata í hádegismatinn en þar sem ég hef ekki áhuga á að borða mat sem lyktar eins og hland þá er stefnan tekin útí sjoppu.

Hefði samt geta farið að grenja í gær... skulum bara orða það svoleiðis að það verður áramótateiti í B10 en Harpa mun ein sjá um að vera gestgjafinn :-( En ef ykkur langar til að standa í biðröð í klukkutíma til að komast inn á Sveitta sveitta, þá mun ég vera þar inni.... edrú að afgreiða allar hinar fyllibytturnar. Sorglegt, ég veit, en ekkert annað í stöðunni því miður!! Bömmer plömmer...

Jæja.... gleðileg jól og allt það

miðvikudagur

Örverpið 

Ótrúlegt en satt þá dröslaðist ég til að skrifa nokkur jólakort. Held að það hafi ekki gerst síðan í barnaskóla þegar við vorum skikkuð til að drita einhverju niður á blað.... en ég semsagt rumpaði þessu af á hálftíma og er nokkuð sátt við það. Það er hinsvegar annað mál hvort ég komi þessum kortum í póst.... ég hef enn nokkra daga, ekkert stress.
Bankinn gaf mér jólamatinn þannig að ég þarf ekkert að fara í matarbúð og svo hef ég alveg sloppið við að fara á Glerártorg þar sem bændurnir og gamla fólkið safnast saman. Þetta gerist ekki betra. Að lokum hefur svo sambýliskonan flúið land þannig að ég er bara ein í B10 um þessar mundir.....

Bjössi er kominn heim og toppar þetta alltsaman :-)

mánudagur

Nokkrar góðar 


Já við erum ekkert lítið sæt í bankanum :-)



Helgin var annars fín.... laufabrauð á föstudaginn, vinna á föstudagsnóttina og laugardaginn, djamm á laugardagskvöldið og einhverskonar jólainnkaup í gær.

Hvernig væri svo að fara einhverntíman út að djamma Karen... þú ert alltaf sofandi ;-)

Well... nennsessu ekki


miðvikudagur

Jólin jólin jólin 

Æi hvað ég þoli ekki þetta stress sem er orðið einkennandi fyrir jólin... allir með sinnep í rassgatinu og æða um eins og þetta sé þeirra síðasta. Sjálf er ég svo róleg yfir þessu að það nær engri átt. Hlakka bara til að sitja með fjölskyldunni, borða góðan mat og kjafta. Þá er mér alveg slétt sama hvort það sé smá ryk í hillunum eða kámugar rúður... svo finn ég bara eitthvað gamalt dót inní bílskúr sem pabbi á og pakka því inn. Þannig slepp ég við að fara í þessar blessuðu búðir þar sem allir virðast vera á einhverjum ofvirknispillum.

Það er sko alveg satt ég er ekki eitt einasta jólabarn!! Hafði það fínt á barnum í Ástralíu í fyrra, chillaði með karamellur og kók í miklum hita og svita..... það var næs!!

mánudagur

Brúna hárið 

Litlu jólin heppnuðust svona líka vel. Ég var sett á barinn í smá stund og held ég að minn helsti afrakstur hafi verið ljós fjólublái drykkurinn sem ég bjó til úr sultu.... annars var fólk líka að drekka viskí blandað í hot´n sweet. Já það voru allir bara í ruglinu!!
Það var ekki gaman að vakna kl.8:45 á laugardagsmorguninn.... stóð upp og fann að áfengið var ekki búið að yfirgefa líkamann. Dröslaðist af stað og í litunina. Aumingja stelpan sem lenti í því að þurfa að lita á mér hárið:

Stelpa: Hvernig lit viltu svo fá í hárið?
Ég: Æi litaðu það bara brúnt!
Stelpa: Eigum við ekki að skoða brúnu litina sem eru í boði.... sjáðu þennan.
Ég: Já þetta er æðislegt, skelltu þessum í!

Eftir þetta talaði hún við mig eins og ég væri 5 ára þroskaheft stelpa.....
Annars er alveg merkilegt hvað maður er ógeðslegur þarna í klipparastólnum. Ég veit að ég var extra illa á mig komin á laugardaginn en mér finnst ég alltaf alveg virkilega ófríð þegar ég fer í klippingu. Á laugardaginn var ég alveg hvít í framan, með fjólubláa bauga og augun voru rauð sokkin og glansandi.... svo skellti stelpan þessari svuntu ufir mig, þröng um hálsinn og í rauninni hverfur hálsinn alveg. Spreyjar svo hárið með vatni, skiptir því í miðju og slekir það niður... þetta er ekki fögur sjón skal ég segja ykkur!!

föstudagur

Litlu jólin 

Merferðarstofnanirnar á landinu verða sennilega stút fullar af snar rugluðum bankastarfsmönnum eftir jólin..... já það er bjór og fíkniefnasamkoma í bankanum í kvöld og þar er missionið einfaldlega að klára byrgðirnar sem til eru á barnum, gott markmið það! Deitið mitt verður fjarri góðu gamni eða í Rúmeníu... verður enginn hönk í rifnum gallabuxum með hneppt niður á bringu mér við hlið. Kæmi ekki á óvart ef mötuneytiskonan myndi sprauta vodka í hangikjötið... kemur allt í ljós.

Þarf að vakna snemma í fyrramálið þar sem ég hef ákveðið að hætta að lifa í þeirri afneitun að minn náttúrulegi háralitur sé kúl.... hann er það ekki, þannig að það er litun í fyrramálið. Svo er vinna á laugardagsnóttina og sunnudaginn þannig að endilega drullið ykkur í heimsókn til mín á Kaffi Ak!!

þriðjudagur

Ok, prófum þetta 

Commentaðu með nafninu þín og....

1. Ég segi þér e-hvað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
5. Ég segi þér hvaða dýr þú minnir mig á
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig
7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt

... nú er að setja hugmyndaflugið í gang

mánudagur

Húsfélagið 

Ótrúlegt að satt þá er einhverskonar húsfélag starfandi í B10... er búin að finna kennitöluna og núna þarf ég bara að finna í hvaða banka reikningurinn er, gera mig að formanni húsfélagsins, taka peningana út og halda partý eða matarboð.... já þetta hljómar vel :-)

föstudagur

Þetta geðveika lið 

Er stundum sett í gjaldkerastúkuna og í dag er einn af þeim dögum... kalla á hvern viðskiptavininn á fætur öðrum.
Næsti gjörðu svo vel (fyrir framan mig stendur maður sem kemur oftar en ekki í bankann. Hann er mjög þunglyndur og talar aldrei neitt)
Hann ælir út úr sér kennitölunni og hvað hann ætli að taka mikið út. Þarna hélt ég að ég myndi bara láta hann kvitta og afhenda honum þessa þúsundkalla sem hann tók út.... nei, hann ákvað að láta spurningarnar dynja á mér á þessum stutta tíma sem hann stóð þarna fyrir framan mig.

Ertu hress í dag?
Ertu farin að hlakka til jólanna?
Ertu byrjuð að skreyta?
Ertu byrjuð að baka?
Áttu íbúð?
Áttu mann?
Áttu krakka?
Býrðu ein?
Hvað ertu gömul?

Þessum spurningum svaraði ég samviskusamlega en var alveg að springa úr hlátri um leið... einhver snar klikkaður kall að spyrja mig svona snubbóttra spurninga og það hlakkaði í honum þegar ég sagðist vera einhleyp.... nei félagi ég er ekki svo illa sett!!

Kvaddi mig nú á því að segja að ég ætti að halda áfram að vera svona brosmyld því þá færi vel fyrir mér í framtíðinni... flott.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?