<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

Myndasjúk 

Er ekki frá því að þessi myndasýki mín sé farin að verða að vandamáli... má ekki sjá flass þá stekk ég á fætur í leit að myndavél, þannig að það fer ekki framhjá neinum þegar ég skelli mér út á lífið... sérstaklega ekki á Kaffi Ak.
Það var semsagt jólahlaðborð hjá bankanum á föstudagskvöldið sem heppnaðist alveg hrikalega vel.... var deitið hans Rögga og hann stóð sig ljómandi vel, mæli með honum ;-) Var nú frekar fyndið þegar ónefndur aðili hótaði að berja Rögnvald ef hann færi illa með mig... ansi ákveðnar þessar konur á miðjum aldri! Þetta var allt alveg ógeðslega fyndið þar sem það eru bara snillingar sem vinna í bankanum.....
Röltum svo á Kaffi Ak... óðum inní miðja tískusýningu og fengum mis gott lúkk frá fólki. Stigum svo trylltan dans inná milli barferðanna.... held að myndirnar inná kaffiakureyri.is segi allt sem segja þarf um þetta góða kvöld!!!

Fjóla kom til byggða um helgina, svona eins og jólasveinarnir þá verður hún ekki uppá fjöllum um jólin.... nammiát og sjónvarpsgláp með henni og svo slóst Birna í hópinn, eyðilagði sófann okkar svona huggulegheit!!
Karen dró mig svo uppúr sófanum um kvöldið og fórum við á rúntinn... alveg að endurnýja fýlinginn frá því við vorum 17 ára. Sóttum Hákon fyllibyttu og rúntuðum um með hann í aftursætinu og ef ég er einhverntíman klikkuð þá er það þegar ég umgengst Karen.... hún hefur einhver sjúkleg áhrif á mig. Endaði svo á Kaffi Ak og fylgdist vel og vandlega með Adda hössla einhverja dömu... fróðlegt

Jammms, góð helgi þetta!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?