<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

...og það gera áttaþúsundogfimmhundruð 

Þungatakmarkanirnar voru afnumdar af vegunum á mánudaginn svo hægt væri að flytja myndirnar mínar norður til Akureyrar.... já þær eru komnar í hús. Tollarardruslurnar ákváðu að rukka mig um 8.500 krónur til viðbótar við þann 22.000 kall sem ég var búin að punga út, meiriháttar!!

þriðjudagur

Brussa 

Það er alveg merkilegt hvað föt geta verið hallærisleg... já fötin eru asnaleg, ekki ég!
Nánast undantekingarlaust eru ermar á peysunum mínum allt of langar og þarf ég þess vegna að brjóta uppá þær (nema á þeim fötum sem ég versla í barnadeildinni). Í dag er ég til dæmis í peysu með einu nettu uppábroti og hefði ég haldi að það myndi duga.... nógu mikið uppábrot svo puttarnir gætu kíkt út. Þar skjátlaðist mér. Ég er semsagt ósjaldan búin að hefta hægri ermina saman við einhverja pappíra. Þarna hangir þetta svo á erminni og reyni ég hvað ég get að fara lúmskt í það að losa helvítis draslið.... er sem betur fer nokkuð misheppnuð fyrir þannig að brussulætin eru hætt að koma fólki á óvart. Næs.
Annars var ég að vinna til 01:30 í nótt og náði því ekki þessum klassíska 10 tíma svefni... já ég er stjörf af þreytu og hefta allt sem ég næ í við ermarnar á mér.
Verð að komast til þeirra Gömlu og leggjast í sjóðandi heitt, klukkutíma langt bað.... þetta eru sennilega bara fráhvarfseinkenni á háu stigi

mánudagur

Myndasjúk 

Er ekki frá því að þessi myndasýki mín sé farin að verða að vandamáli... má ekki sjá flass þá stekk ég á fætur í leit að myndavél, þannig að það fer ekki framhjá neinum þegar ég skelli mér út á lífið... sérstaklega ekki á Kaffi Ak.
Það var semsagt jólahlaðborð hjá bankanum á föstudagskvöldið sem heppnaðist alveg hrikalega vel.... var deitið hans Rögga og hann stóð sig ljómandi vel, mæli með honum ;-) Var nú frekar fyndið þegar ónefndur aðili hótaði að berja Rögnvald ef hann færi illa með mig... ansi ákveðnar þessar konur á miðjum aldri! Þetta var allt alveg ógeðslega fyndið þar sem það eru bara snillingar sem vinna í bankanum.....
Röltum svo á Kaffi Ak... óðum inní miðja tískusýningu og fengum mis gott lúkk frá fólki. Stigum svo trylltan dans inná milli barferðanna.... held að myndirnar inná kaffiakureyri.is segi allt sem segja þarf um þetta góða kvöld!!!

Fjóla kom til byggða um helgina, svona eins og jólasveinarnir þá verður hún ekki uppá fjöllum um jólin.... nammiát og sjónvarpsgláp með henni og svo slóst Birna í hópinn, eyðilagði sófann okkar svona huggulegheit!!
Karen dró mig svo uppúr sófanum um kvöldið og fórum við á rúntinn... alveg að endurnýja fýlinginn frá því við vorum 17 ára. Sóttum Hákon fyllibyttu og rúntuðum um með hann í aftursætinu og ef ég er einhverntíman klikkuð þá er það þegar ég umgengst Karen.... hún hefur einhver sjúkleg áhrif á mig. Endaði svo á Kaffi Ak og fylgdist vel og vandlega með Adda hössla einhverja dömu... fróðlegt

Jammms, góð helgi þetta!!

föstudagur

Jólahlaðborð 

Bankinn hefur ákveðið að vera flottur á því og gefa okkur eitthvað annað að borða en skinkusamlokur, við munum því ráðst til atlögu í Ketilhúsinu í kvöld og úða í okkur kræsingar þangað til við fáum hjartsláttartruflanir af áti.... þetta er jú allt frítt!
Ég ætla að hendast út í búð í matartímanum mínum í þeirri von að finna mér einhver sæmileg föt til að klæðast í þessu áti.... fór meira að segja í bæinn í síðustu viku bara í þeim tilgangi að kaupa mér föt og eyða peningum en allt kom fyrir ekki.... Merkilegt!!

Annars er allt í gúddí í B10 og síðasta pub quiz fyrir jól var þeytt í gærkvöldi... þessar ströngu æfingarbúðir hafa greinilega ekki verið nógu strangar, say no more!

Well.... góða helgi

miðvikudagur

What the...?? 

Og nýjustu fréttir (leyfa ykkur að fá þetta helvíti beint í æð).... pakkadruslan er ekki nema rúmlega 2 kíló!!

þriðjudagur

Krap.... 

Fékk bréf inn um lúguna í gær.... myndirnar eru mættar í helvítis tollinn!!! Já þetta styttist.

mánudagur

Bankarán 

Er búin að fatta af hverju fólk telur mig klikkaða.... alltaf ef það á að gera eitthvað fáránlegt er ég látin gera það og endar sú athöfn iðulega á því að ég geri mig að algjöru fíbbli. Það er svona að vera til í nánast hvað sem er.
Bankafólkið kom til mín á laugardagskvöldið og hömuðumst við svo mikið á fótboltaspilinu að gaurinn sem var með partý á neðrihæðinni ákvað að koma upp bara til að athuga hvað í ósköpunum gengi á.... við tókum full mikið af skotum und das kugelschweiser sló í gegn (veit ekkert hvað það er en er ógeðslega fyndið samt). Við komumst að því að starfsfólkið á Gula gistiheimilinu heldur trúnaði við gesti sína og vildi ekki gefa okkur neinar upplýsingar um Brynjólf, en við viljum meina að hann búi þar!
Æddum svo í Sjallann þar sem Tinna var rekin úr fatahenginu en hún ákvað að hjálpa aðeins til og sló í gegn að eigin sögn :-) Ég og Þóra slóum í gegn á dansgólfinu og í heild var þetta kvöld ekkert nema snilld!!

... annars er ég búin að skipta um skoðun, bæjarstjórinn er fínn kall :-)

miðvikudagur

Hvað skal gera?? 

Heilinn á mér er ein stór flækja þessa dagan.... extra stór flækja.

Shitturinn titturinn..... ég veit að ég ætla að halda bankapartý á laugardaginn og that´s it


þriðjudagur

Daaaaaaa 

Mig klægjar í hjartað mig langar svo til útlanda....
Er annars í sykursjokki þar sem ég og Tinna ákváðum að fá okkur bara kók í hádegismat... eins og ég segi, mjög vel gefin stúlka hér á ferð :-)

Fékk endanlega staðfestingu á því um helgina að Ólafsfirðingar eru þjóðfélagsendar!

föstudagur

Já góðan daginn.... það er flösku dagur í dag!!

Binni kallinn er búinn að setja inn svona líka skemmtilegar myndir inná síðuna sína frá því í sumar og er gaman að því hvað drengurinn skrifar fyndinn texta undir myndirnar... skoðaði þetta í gær og fékk nett flash back frá því í Menntó þegar Binni og félagar nærðust á því að leggja mig í einelti... já mér finnst þetta ógeðslega fyndið :-)

En jæja.... það er alveg málið að allir fá eina risa mynd frá mér í jólagjöf. Fínt að vera búin að versla allar jólagjafirnar á einu bretti og nóvember er ekki hálfnaður.... þá er ég laus við þetta böl sem jólagjafainnkaupin eru!
Annars er maður bara í góðum gír. Matur og mikið kjaft með Þóru á morgun, vinna um nóttina og svo aftur á sunnudaginn. Skrapp í leikhús í gær á Edit Piaf og það var rosa flott... fór líka í leikhús á sunnudaginn síðasta og það var algjör snilld, vó hvað ég er menningarleg!

.... jæja, er farin að semja þýska klám-smásögu fyrir samstarfsfólkið

mánudagur

Tuttuguogfockingtvöþúsundkall 

Ohhhhh Kata, þú ert þroskaheft!!
Á föstudaginn ákvað ég að senda nokkrar myndi í framköllun. Myndir frá því í sumar og kominn tími til að framkalla... henti inn einhverjum 50 myndum því ekki nenni ég að lenda aftur í því að láta þær stoppa í tollinum. Gekk frá öllu draslinu og prentaði loks kvittunina mína út. Fínt að skoða svo hvað herlegheitin kosta þar sem það kostaði ekki nema um 6.000 að framkalla hátt í 300 myndir.... þarna stóða það, svart á hvítu..... 22.000!!!!!!!
Hin vel gefna ég fór svo að skoða hvað í andskotanum ég hafði pantað og til að gera langa sögu stutta þá á ég von á 50 RISA STÓRUM myndum eftir nokkra daga..... guð minn góður!!! Hringdi í ofvæni í Gísla bróður þar sem hann veit það sem ég veit ekki og hann ráðlagði mér að senda meil á liðið úti.... úffff, gerði það og leiðrétti pöntunina. Er svo búin að hlægja að þessu alla helgina hvað væri fyndið að fá þessar ógeðslega stóru myndir (sem eiga pottþétt eftir að lenda í tollinum). Brúðarmynd af Lóu og Jóhanni í fullri stærð, já ógeðslega fyndið..... þangað til ég fékk bréf í morgun þar sem pöntun mín var staðfest... 50 stykki risa myndir!! Þeir gátu ekki hætt við pöntunina né breytt henni þar sem þær fóru í framleiðislu um leið og ég ýtti á staðfesta hnappinn....

Svo sem allt í lagi þar sem ég hef ekkert annað að gera við peningana mína nema eyða þeim í svona vitleysu....

fimmtudagur

GSM 

Ég er alvarlega að íhuga að koma með tillögu í símafyrirtækin þess eðlis að það verði ekkert gsm símasamband inni í þjónustufyrirtækjum eins og til dæmis bönkum.... það er ekkert ömurlegra en þegar maður er að afgreiða fólk og svo hringir helvítis síminn þeirra. Ótrúlegt en satt þá svara fólk nánast undantekingarlaust og ætlast þar með til þess að ég standi bara þarna og bíði þolinmóð á meðan það talar í símann um hluti sem skipta ekki nokkru einasta máli.... þoli þetta ekki!!

þriðjudagur

Killer helgi 

Er fyrst núna að jafna mig eftir helgina... vann nánast stanslaust frá því á föstudagsmorgun og fram á sunnudagsnótt. Enda þegar ég kom heim úr vinnunni í gær fór ég beint að sofa og svaf þangað til í morgun.... fínir 14 tímar það :-) Komst að því eftir þetta að það er full mikið að vera í 3 vinnum þannig að ég fækkaði um eina. Mjög ólíkt því sem ég var að gera síðasta vetur þar sem lífið snérist um sól, góðan mat og endalaus ferðalög....

... ég þrái næstum því ekkert heitar en að komast til útlanda!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?