<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

leiga í sjónvarpsherberginu 

Var ansi mikið stuð á liðinu sem mætti á árshátíðina hjá Brim á laugardagskvöldið... sjálf var ég að vinna á barnum. Var búin að vinna frekar snemma þannig að ég reif upp bjórinn og dansaði feitt við nýju vini mína. Var frekar erfið ákvörðun hvert við ættum að fara þegar árshátíðinni lauk þannig að við fórum í partý heim til mín.... auðvitað.
Henti ég liðinu heim en ákvað sjálf að skella mér í Sjallann á Ný Dönsk í smá stund.... náði að ljúga mig inná VIP svæðið þar og spjallaði við hljómsveitarmeðlimina. Enginn flottari en Björn Jörundur eða Bjössi frændi eins og ég vil kalla hann! Kom mér svo heim í partýið góða og skemmti mér konunglega :-)
Það var strákur í partýinu sem var að vinna með mér á árshátíðinni... hann var að tala um hvað hann langaði til að flytja að heiman og eitthvað þannig að ég sagði að hann mætti búa í sjónvarpsherberginu okkar.... reyndar þyrftum við alltaf að geta átt aðgang að því herbergi þannig að hann mætti borga 4.000 kall fyrir að búa þarna hjá okkur. Hann myndi mæta með græjurnar sínar og sjónvarpið og Harpa sagði að fataskápurinn hans gæti verið bak við sófann.... þetta fannst okkur ógeðslega fyndið. Svo hringir kauði í mig í gær og spyr hvort okkur hafi ekki alveg örugglega verið alvara og hvort hann mætti koma og búa hjá okkur..... hummmm, nei! Fólk ekki alveg að fatta þennan sjúka húmor sem maður er með.

Tók mér góðan göngutúr uppí Keilusíðu í gærkvöldið í matarboð til Þóru.... bernes sósa og nautakjöt *SLEF*

This page is powered by Blogger. Isn't yours?