<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

Hefst þá leitin 

Stefnan var tekin á leikhús í gærkvöldi en þar sem það var líka pub quiz á Græna hattinum þá hringdi Harpa í leikhúsið og fékk að færa okkur um sýningu þar sem þetta neyðartilfelli kom uppá.....
Jæja, stútuðum nokkrum bjórum heima áður en við héldum af stað og ég er ekki frá því að ég hafi verið pínu stressuð þar sem það var pressa á okkur... markmiðið var að vinna bjórspurninguna og fá fleiri stig en síðast. Fyrra markmiðið tókst en stigafjöldinn var alveg fráleitur.... þannig að það verður pub quiz aftur næsta fimmtudag og svo stefnum við á pub quiz á Dalvík á föstudagskvöldið... þá vantar okkur bara driver!!

Var dinglað hjá okkur í gærkvöldi og ég stökk til dyra.... hefði betur látið það ógert en þetta gerðist:

Kjelling: Halldór, á hann heima hér? (Fyrir aftan konuna stendur stelpa með krosslagðar hendur og hettu á hausnum... mjög ógnvekjandi)
Ég: Nei, en ætli það sé ekki maðurinn á efrihæðinni.
Kjelling: Átt þú heima hér?
Ég: Já
Kjelling: Ég heiti eitthvað og er að vinna hjá RÚV (liftir svo upp einhverju fáránlegu merki og fílar sig eins og hún vinni hjá FBI. Fílusvipurinn alveg í hávegum hafður og stelpan fyrir aftan ekki skárri)
Ég: já blessuð (sé hrikalega eftir því að hafa farið til dyra og langar mest til að loka á smettið á konunni og halda áfram með bjórinn minn)
Kjelling: átt þú sjónvarp?
Ég: Nei (það er sko satt.... við erum með það í láni, ég á ekkert í því)
Kjelling: Nú, en útvarp?
Ég: Á græjur (æi fock....hafði átt að segja að ég ætti bara geislaspilara)
Kjelling: Aha.... borgaru afnotagjöld af útvarpinu? (kom helvítis glott á andlitið á kjellingunni og stelpan á bakvið skemmti sér líka vel.... þarna voru þær búnar að ná mér)
Ég: Tja
Kjelling: Þú verður að borga af þessu.... hvaða tegund eru græjurnar.
Ég: Panasonic (helvítis drullu tussa)
Kjelling: Skrifaðu nafn og kennitölu hérna á þetta blað...
Ég: OK..... (Farð þú og fyndu þér einhver kall til að losa aðeins um þessa spennu og fýlu sem er að drepa þig....)

Ömurlegt..... en núna er ég farin í mat; hamborgari, franskar og kók :-)

miðvikudagur

Stælar....Stælon 

Rassinn slapp nú betur en ég bjóst við en sköflungurinn og hægra hnéið er ansi illa farið....
Skrapp í mat til þeirra gömlu í gær og ákvað svo að rölta heim. Úti var mikil hálka þannig að ég ákvað hlaupa smá og renna mér svo niður brekkurnar.... ferlega gaman. Ákvað svo að taka smá stunt atriði. Ætlaði að hoppa fram af kantstein og renna mér svo áfram... heppnaðist nú ekki betur en svo að ég skall á rassinn/bakið og í öllum hamaganginum fékk hnéið líka mikið högg og urðu afleiðingarnar risa mar.... auðvitað stökk ég á fætur í þeirri von um að enginn hefði séð mig en mikið ofboðslega var þetta fyndið, ég er algjört fíbbl!!

mánudagur

leiga í sjónvarpsherberginu 

Var ansi mikið stuð á liðinu sem mætti á árshátíðina hjá Brim á laugardagskvöldið... sjálf var ég að vinna á barnum. Var búin að vinna frekar snemma þannig að ég reif upp bjórinn og dansaði feitt við nýju vini mína. Var frekar erfið ákvörðun hvert við ættum að fara þegar árshátíðinni lauk þannig að við fórum í partý heim til mín.... auðvitað.
Henti ég liðinu heim en ákvað sjálf að skella mér í Sjallann á Ný Dönsk í smá stund.... náði að ljúga mig inná VIP svæðið þar og spjallaði við hljómsveitarmeðlimina. Enginn flottari en Björn Jörundur eða Bjössi frændi eins og ég vil kalla hann! Kom mér svo heim í partýið góða og skemmti mér konunglega :-)
Það var strákur í partýinu sem var að vinna með mér á árshátíðinni... hann var að tala um hvað hann langaði til að flytja að heiman og eitthvað þannig að ég sagði að hann mætti búa í sjónvarpsherberginu okkar.... reyndar þyrftum við alltaf að geta átt aðgang að því herbergi þannig að hann mætti borga 4.000 kall fyrir að búa þarna hjá okkur. Hann myndi mæta með græjurnar sínar og sjónvarpið og Harpa sagði að fataskápurinn hans gæti verið bak við sófann.... þetta fannst okkur ógeðslega fyndið. Svo hringir kauði í mig í gær og spyr hvort okkur hafi ekki alveg örugglega verið alvara og hvort hann mætti koma og búa hjá okkur..... hummmm, nei! Fólk ekki alveg að fatta þennan sjúka húmor sem maður er með.

Tók mér góðan göngutúr uppí Keilusíðu í gærkvöldið í matarboð til Þóru.... bernes sósa og nautakjöt *SLEF*

miðvikudagur

Whazzzzup 

Það er svona líka allt að verða kreisí hérna í bankanum.... einn 4 ára strákur að leika sér á gólfinu á meðan mamman talar við þjónustufulltrúa. Annars er bankinn tómur og starfsfólkið leikur sér í bubble shooter... mjög uppbyggilegur leikur það.
Ætlaði heldur betur að klára bókina í gær sem ég er að lesa... átti bara 200 blaðsíður eftir og hún er á útlensku í þokkabót. Ekki skemmtilegasta bók sem ég hef lesið þannig að ég ákvað að lesa bara annan hvern kafla. Fattaði svo að það var nóg að lesa þriðja hvern kafla til að ná samhenginu og að lokum gafst ég upp og bjó bara til góðan endi á þetta drama!

....Þarna labbar mamman svo út með krakkann og bankinn er tómur.

mánudagur

Mikið hlegið 

Frekar ómerkileg helgi að baki þar sem ég var að vinna og nenni ég ekki að blogga um það.
Átti samt ógeðslega gott laugardagskvöld/nótt með Þóru, tveim gaurum og þroskaheftri smá buddu.... endalaus einkahúmor sem fæddist í stofunni heima hjá mér og þess vegna fáránlegt að reyna að blogga um það. En það verður ekki leiðinlegt að hitta Þóru næst og hlægja að öllu þessu bulli :-) Við tókum nokkur góð fótboltaspil þarna um nóttina og ætla ég rétt að vona að stelpan á neðri hæðinni hafi ekki vaknað við allan æsinginn í okkur. Gestabókin er líka orðin massa flott!!

Þessir gaurar buðu mér svo að vinna á bar um næstu helgi... árshátíð í vinnunni hjá þeim. Þannig að Þóra verður að vera deit hjá öðrum þeirra svo við getum haft smá reunion.

föstudagur

Pub quiz 

Ég og sambýliskona mín skelltum okkur á Græna hattinn í gærkvöldi og tókum þátt í pub quiz ásamt helling af öðru fólki.... við vissum ekkert útí hvað við vorum að fara en stóðum okkur svona líka rosalega vel, held að við höfum lent í fjórða sæti :-) Þannig að núna hefjast strangar æfingarbúðir því við ætlum okkur svo sannarlega að vinna næst.... kassi af bjór í verðlaun!!

Kíktum svo aðeins á Dátann í þeim tilgangi að taka eins og einn pool leik en hættum snarlega við það þar sem við gleymdum heita kakóinu og appelsínugulu vestunum heima... já alveg að fíla mig eins og að vera á foreldravaktinni þarna inni.

... ætli það sé ekki fínt að skella sér til Gambíu og vinna sem enskukennari í búddaklaustri?

fimmtudagur

Vanda skaltu valið sonur.... 

... veldu menn en ekki konur!! (Eins og Gísli bróðir orðar það)

Það er neflilega spurning hvort ég eigi að mæta í saumaklúbb í bankanum í kvöld. Sitja þar með prjónana í höndunum og kjafta um saumaskap eða fara á Græna hattinn, sitja með bjór í hönd og fylgjast með Pub quiz!!

Eins og ég segi, erfitt val....

þriðjudagur

Útrunnin 

Mér finnst alltaf jafn ljúft að vakna kl.6 á þriðjudagsmorgnum. Þessir dagar eru rusladagar og þegar ruslakallarnir mæta til að tæma tunnurnar verða mávarnir alveg kreisí og elta aumingja karlana með ruslið... hef aldrei lent í öðrum eins hávaða. En það er fínt að rumska, kíkja á klukkuna, snúa sé svo á hina hliðina og vita að maður má sofa í 2 tíma í viðbót!

Helgin var annars hin ljúfasta.... á föstudagskvöldið ákvað ég að gerast fyrirmyndarhúsmóðir og byrjaði að baka súkkulaðiköku. Kakan sjálf heppnaðist fínt en það er ekki hægt að segja það sama um helvítis kremið. Þetta var algjör brandari og baksturshæfileikar mínir ekki alveg að gera sig. Uppúr miðnætti ákvað ég að skella mér í Sjallann og rifja upp smá háskólatakta. Sprellmótið var í fullum gangi og ég tróðst uppá hana Þóru mína og skemmtum við okkur mjög vel....
Svo átti ég víst afmæli á laugardaginn og er ég því núna komin fram yfir síðasta söludag.... dagurinn var ljómandi og kvöldið líka mjög gott. Hélt smá kaffiboð um daginn en um kvöldið komu Linda og Axel í heimsókn og hömuðumst við svo mikið á fótboltaspilinu að það sprakk æð í einum putta á mér... allavegna varð hann allt í einu blár og marinn, ógeð. Birna, Þóra og Þórunn mættu svo á svæðið og enduðum ég og Birna svo í mjög dularfullu strákapartý.... 20 karlmenn saman á trúnó er eitthvað sem ég vil ekki sjá mikið oftar, kræst!! Við Bibban skelltum okkur svo á Kaffi Ak (pikkuðum Hörpu upp þar) og enduðum þetta á Amour með skemmtilegu fólki :-)

fimmtudagur

Eitt ár 

Klukkan hringdi klukkan 05:00 og ég dröslaðist á fætur. Fór fram og fékk mér smá að borða og kláraði að taka mig til. Var orðin svona frekar spennt og loksins lögðum ég og Gísli af stað í Hafnarfjörðinn þar sem Þóra beið eftir okkur.... ég hoppaði uppí bílinn til hennar og brunuðum við af stað til Keflavíkur. Nokkrum klukkutímum seinna vorum við að spóka okkur um í London með Hörpu Hrönn. Við drösluðum farangrinum okkar fram og til baka, upp og niður allskonar tröppur, inn og útúr neðanjarðarlestunum og eftir nokkur svitaköst, en ljómandi tíma í London, hoppuðum við uppí næstu flugvél og eyddum næstu 12 tímunum þar..... lentum í Singapore nógu lengi til að versla okkur myndavélar og slappa aðeins af. Næsta flug tók ekki nema 7 tíma og þann 8. okt, á 24 ára afmælisdaginn minn, lentum við í Ástralíu!

....Þetta var fyrir nákvæmlega ári síðan :-)

mánudagur

Fótbolti 

.... var vísindaferð fyrir hjúkkur hér í bankanum á föstudagskvöldið og því nóg af fríum bjór þar á ferð. Ég er svo gestrisin að ég ákvað að bjóða bankaliðinu heim í smá teiti.... það endaði á mjög dramatískan hátt!
.... Lóa feitabolla kom hingað Norður
.... Ég og Þóra stóðum í mikilli eldamennsku á laugardagskvöldið
.... átti í samræðum við drengi á laugardagskvöldið sem hafa greindarvísitölu á við majonesdollu
.... er með króníska sinaskeiðabólgu í öxlunum og sigg á puttunum eftir fótboltaspil dauðans!!
.... vel endurnærð eftir þessa helgi :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?