<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

Á flakki 

Dýr eru eitthvað sem ég hef aldrei kært mig neitt sérstaklega mikið um.... langaði reyndar ógeðslega mikið í hamstur þegar ég var 12 ára en sú löngun drapst fljótlega þegar ég fattaða hvað þetta eru ógeðsleg dýr... mjög líkir rottum. Já og rottur eru viðbjóðslegustu dýr í heimi, sérstaklega þegar fara að vaxa vængir á þær... leðurblökur! Held að það sé í ættinni hjá mér að þykja rottur einhver þau viðbjóðslegustu dýr sem lifa hér á jörð.... feit rotta er eitthvað sem ekkert okkar vill komast í kynni við. Man þegar ég var að labba með Þóru útí Ástralíu og það hleypur svona 10 kílóa rotta framhjá okkur. Mest langaði mig til að öskra og hlaupa í burtu en ég lét mér nægja að stoppa og bíða eftir að mesti hrollurinn yfirgæfi líkamann. Langar enn til að gubba þegar ég hugsa um þetta atvik....
Allavega, í gær lenti Bjössinn í frekar viðbjóðslegri lífsreynslu þegar stærðarinnar rotta kom á móti honum í stigaganginum í Svíþjóð.... þetta hlussu kvikindi kemur á mikilli ferð og ákveður svo að stökkva á Bjössa, eitthvað vankaðist hún við höggið en hljóp svo út og eftir stóð Bjössi með hroll dauðans. Sjálf hefði ég tryllst og látið meindýraeyði sprauta svæðið í kílómetra fjarlægð....
Eitt ógeðslegasta atriði sem ég hef séð í bíómynd er þegar Indiana Jones og gellan eru að skríða í ræsi og það eru rottur gjörsamlega alls staðar.... úfffff. Samt fínt að geta notað kattadruslurnar í það að éta rotturnar þótt það væri auðvitað best að vera laus við báðar þessar dýrategundir.

Er logguð inn í þrjár tölvur í vinnunni og flakka bara á milli eins og vantar, mjög fjölbreytilegt starf það og svo í kvöld mun ég flytja að heiman í þriðja skipti...!!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?