fimmtudagur
Fríhelgi
Ms. Sigmundsson ætlar að halda hingað norður um helgina enda kominn tími til að hitta gelluna og bumbuna hennar. Sjálf er ég í fríi alla helgina og veit ekkert hvað ég á af mér að gera þar sem ég hef ekki verið í fríi heila helgi síðan á Eiðum ´64 (hahaha, fyndið). Planið var reyndar að fara í haustferð með bankanum á laugardaginn en þar sem það verður ekkert haust þetta árið var ferðinni frestað.... veðurguðirnir hafa ákveðið að skella sér bara beint í vetrarpakkann. Stefnir því allt í rólega helgi uppí sófa með góða bók á meðan snjókornin dúndrast niður úr himninum... frekar huggulegt.
Er komin með nýja myndarsíðu og hef ég nú þegar hent inn myndum af Brekkugötunni... næs!
Well well.... vantar greinilega fjórðu vinnuna eða eitt stykki kærasta því ég er komin með allt of mikinn frítíma.

þriðjudagur
Klukkuð/klikkuð
Var ekki ánægð að sjá að fólk er búið að klukka mig... hver andskotinn! En ætli ég dröslist ekki til að drita einhverju ómerkilegu hérna niður bara til að vera ekki félagsskítur. Látum okkur nú sjá...
- Ég kúgast í hvert skipti sem ég horfi á banana eða heyri á þá minnst og æli ef ég kem við þennan slepjulega ávöxt.
- Mamma er alveg æst í að ég fari aftur í Háskólann og læri að verða hjúkka í þetta skiptið.... en sjúkrahús eru svona svipuð og bananar í mínum augum.
- Ég heyri mjög illa (og tala þess vegna mjög hátt) og lendi því oftar en ekki í alveg fáránlegum samræðum við fólk þar sem ég giska á hvað fólk er að segja og svar alveg út í hött.... enda halda nánast allir að ég sé þroskaheft.
- Ég er orðin ferðasjúk eftir að ég kom heim frá Ástralíu og í augnablikinu langar mig í ferðalag um Rússland.
- Mér finnst leiðinlegt að lesa blogg hjá fólki sem skrifar ekki um neitt annað en hvað það sé orðið feitt, verði að fara að hreyfa á sér rassgatið og svo framvegis... Boring!!
mánudagur
Laugardagurinn
Er með skítaglott á andlitinu eftir frábæran laugardag.
- Vaknaði uppúr hádegi og fór heim til að knúsa litlu frænku og fjölskyldu sem voru í heimsókn.
- Tók mig til fyrir skírnina hans Júlla sem heitir reyndar Sævar Eðvald... gott að fara í kirkju svona fyrir átök kvöldins. Svo tók veislan við þar sem við átum gjörsamlega á okkur gat... snilldar bakari hún Jóhanna!
- Ég, Karen og Grjónið ákváðum svo að kíkja aðeins á íshokkíleikinn og stiðja hana Birnu okkar. Ætla ekki að hafa mörg orð um þennan leik en þakka guði fyrir að hafa verið með bjór með mér, það var þó allavegna eitthvað skemmtilegt á seiði....
- Héldum svo heim í skreitingar og pizzuát og svo fór fólkið að týnas inn.
- Afríkubúningarnir slógu svo sannarlega í gegn, allt var flæðandi í sellofon og bjór, það var gerð súkkulaðirúsinuárás og gestabók Brekkugötunnar er sú flottasta!!
Þakka öllum kærlega fyrir komuna og frábært kvöld :-)
fimmtudagur
Vinnan
Dáltið mikið svekkelsi í gangi núna þar sem ég þarf að vinna annað kvöld en get ekki verið með Þóru minni og rifjað upp snilldar Aussie takta.... ætlum nú samt að hittast í kvöld, borða hrísgrjón og pylsur, skoða myndir og taka svo hina sívinsælu pooltakta :-) Það eru bara 9 ár í reunionið í Ástralíu Þóra!!!!
En já, í gær kom svo Líney til Akureyrar og hafði í för með sér lampann sem stelpurnar gáfu mér í afmælisgjöf... takk elskurnar :-* hann tekur sig hrikalega vel út í íbúðinni. Þannig að það er allt að verða klárt fyrir partýið á laugardaginn og á morgun verður ÁTVR heimsótt!
Mest lítið að gerast samt fyrir utan bankavinnuna þar sem ekkert nema gamalt fólk og öryrkjar venja komu sína. Sambýliskon mín var svo flott á því á þriðjudagskvölið og bauð mér út að borða... gott samband okkar á milli :-)
Enda þetta á eitt stykki afmæliskveðju til Hörpu Hrannar :-)

Partýpleisið
Dröslaðist einhvernvegin í gegnum vinnudaginn á föstudaginn, fór heim og svaf þangað til ég mætti til vinnu á Kaffi Ak. Fékk að fara snemma heim og var því hin sprækasta á laugardaginn en var honum eytt í þvott, matarinnkaup og heimsókn til Hildar móðu. Ég og Harpa elduðum svo góðan mat og borðuðum full lengi að við misstum nánast af leikhúsinu. Redduðum því og vorum á sýningunni ásamt flestum eldriborgurum bæjarins... sýningin var ágæt en bjórinn og kjaftið við Begga og Alla var algjör snilld. Höfðum það hrikalega gott en skelltum okkur svo í bæinn og held ég að myndirnar frá Kaffi Ak (17. sep albúmið) segi allt sem segja þarf... já ég var á svæðinu :-) Ógeðslegt fjör á okkur og þetta verður endurtekið í bráð!!
Held ég hafi ekki mörg orð um gærdaginn þar sem Friends var sett í videoið uppúr hádegi og ég, Harpa og Haukur lágum/sváfum uppí sófa eins og algjörar klessur.... næs.
Næsta helgi verður ekki síðri þar sem ég og Þóra ætlum að taka helgina snemma með pool og bjór á fimmtudaginn, Aussie reunion á föstudaginn og svo er afmælisveislan vinsæla á laugardaginn :-)

föstudagur
Matarboð
Ég og Harpa héldum okkar fyrsta matarboð í gær og var heiðursgesturinn að þessu sinni hann Beggi.... heppnaðist þetta bara ljómandi vel og ætlum við að hafa framhald á laugardagskvöldið og bæta jafnvel nokkrum vel völdum einstaklingum við. Beggi ákvað að slútta kvöldinu frekar snemma þannig að ég og Harpa skelltum okkur í pool og svo bjór á Amour.... Kristjana og Guðbjört í rétta gírnum og mikið stuð á liðinu. Ég er ekki sú allra hressasta í vinnunni í dag en ógeðslega var ég ánægð þegar ég labbaði af stað í vinnuna í morgun því 30 sek seinna var ég mætt á svæðið.... já ég bý á besta stað. Það er svo vinna á Kaffi Ak í kvöld og alveg möst að allir komi og kíki á mig :-)
Kveð að sinni og eigið góða helgi!
Kveð að sinni og eigið góða helgi!
miðvikudagur
Á flakki
Dýr eru eitthvað sem ég hef aldrei kært mig neitt sérstaklega mikið um.... langaði reyndar ógeðslega mikið í hamstur þegar ég var 12 ára en sú löngun drapst fljótlega þegar ég fattaða hvað þetta eru ógeðsleg dýr... mjög líkir rottum. Já og rottur eru viðbjóðslegustu dýr í heimi, sérstaklega þegar fara að vaxa vængir á þær... leðurblökur! Held að það sé í ættinni hjá mér að þykja rottur einhver þau viðbjóðslegustu dýr sem lifa hér á jörð.... feit rotta er eitthvað sem ekkert okkar vill komast í kynni við. Man þegar ég var að labba með Þóru útí Ástralíu og það hleypur svona 10 kílóa rotta framhjá okkur. Mest langaði mig til að öskra og hlaupa í burtu en ég lét mér nægja að stoppa og bíða eftir að mesti hrollurinn yfirgæfi líkamann. Langar enn til að gubba þegar ég hugsa um þetta atvik....
Allavega, í gær lenti Bjössinn í frekar viðbjóðslegri lífsreynslu þegar stærðarinnar rotta kom á móti honum í stigaganginum í Svíþjóð.... þetta hlussu kvikindi kemur á mikilli ferð og ákveður svo að stökkva á Bjössa, eitthvað vankaðist hún við höggið en hljóp svo út og eftir stóð Bjössi með hroll dauðans. Sjálf hefði ég tryllst og látið meindýraeyði sprauta svæðið í kílómetra fjarlægð....
Eitt ógeðslegasta atriði sem ég hef séð í bíómynd er þegar Indiana Jones og gellan eru að skríða í ræsi og það eru rottur gjörsamlega alls staðar.... úfffff. Samt fínt að geta notað kattadruslurnar í það að éta rotturnar þótt það væri auðvitað best að vera laus við báðar þessar dýrategundir.
Er logguð inn í þrjár tölvur í vinnunni og flakka bara á milli eins og vantar, mjög fjölbreytilegt starf það og svo í kvöld mun ég flytja að heiman í þriðja skipti...!!!

Þér er ekki boðið...
Þá er það ákveðið..... Afmælis/innflutningspartý verður haldið í Brekkugötu þann 24. september. Ég og Karen ætlum að halda enn eina snilldar afmælisveisluna saman (hver man ekki eftir 18/13 ára afmælinu þar sem við vorum með hljómsveit og allt?).
Það er allskonar lið búið að boða komu sína og ætli Kojo, sonur Kofi Annan, verði ekki heiðursgestur en Karen og Birna kynntust honum útí Afríku nú á dögunum.... sprækur strákur að þeirra sögn og aldrei að vita nema hann verði næsti tengdasonur þjóðarinnar!!
.... nú er bara að njóta síðustu daganna fyrir öldrun.

Lyklavöld
- Komin með lyklana af nýju íbúðinni og nú geta flutningar hafist...
- The fat lady er vægast sagt mjög smekklaus og verða þessar blessuðu gardínur rifnar niður við fyrsta tækifæri.
- Jafnvel komin dagsetning fyrir innflutningsparty (24. sept..... eftir skírnina hjá Júlla!)
- Er þessa stundina í þremur vinnum og því nóg að gera.

Sjónvarpsstjarna
Var hringt í mig í vinnuna um daginn og í símanum var kona að hringja fyrir IDOL stjörnuleit.... æðislegt. Harpa skráði hálfan bæinn í þetta og núna er verið að hringja út og athuga hvort maður ætli ekki alveg örugglega að mæta. Ég hafði nú ekki hugsað mér það og er aðal ástæðan fyrir því sú að ég er gjörsamlega laglaus og hef ekki mikinn áhuga á að gera mig að fífli fyrir framan alþjóð..... aftur! Konan var nú ekki á því að sleppa mér úr símanum og spurði mig því hvort þau mættu ekki mæta í vinnuna til mín og búa til eitthvert smá kynningarmyndband um mig.... góðan daginn, er ekki allt í lagi!!
Úffff, bíð eftri að stjórnendur Ástarfleysins hringi í mig og bjóði mér þátttöku... þá væri botninum náð.
Úffff, bíð eftri að stjórnendur Ástarfleysins hringi í mig og bjóði mér þátttöku... þá væri botninum náð.