<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

Aldur er afstæður 

Já ég er veik.... búin að sofa síðan á sunnudagskvöldið þannig að ég er búin að afgreiða ágústskammtinn af svefni. Þetta er bara aumingjaskapur og ég ætla að drullast í vinnuna á morgun.

Verló var fín.... Myndatakan með Birni Jörundi og Bjössa stendur uppúr! Annars fór verló að mestu framhjá mér og mér svona líka nett sama.

Þegar ég var að fljúga heim frá Köben eftir ferðalag mitt frá Ástralíu sat ég við hliðina á miðaldra konu sem þurfti rosalega mikið að spjalla við mig. Segja mér hvað börnin hennar væru að gera og eitthvað bla bla.... ég brosti bara og reyndi að láta hana fatta að ég væri þreytt eftir mikið og langt ferðalag og nennti ekki að tala við hana, þannig að ég setti heyrnatólin á hausinn á mér og styllti tónlistina frekar hátt þannig að ég heyrði ekki í henni.... hún gafst ekki upp og byrjaði að pota í mig til að sýna mér einhvern hring og naglalakk sem hún hafði keypt sér, æðislegt. Þannig að ég byrjaði aðeins að tala við konuna, að lokum spurði hún hvað ég væri gömul.... 23 ára!! jájá, eru þá fædd 1982???? Var ekki lengi að segja bara já og setja heyrnatólin aftur á. Shit, á þessu augnabliki fór ég að hugsa að þessi kona byggi pottþétt á Akureyri og væri viðskiptavinur bankans og kæmi sennilega í bankann á hverjum degi og myndi tala við mig.... kæmist svo að því að ég væri ekkert 23 ára og það væri rosalegt. Hefði heldur ekki passað að ég hefði tekið mér ár frí eftir menntaskóla, væri búin með 3ggja ára háskólanám og hefði eytt heilum vetri í Ástralíu... já Kata, þetta eru svo sannarlega áhyggjur sem þú þarft að hafa.
Við lendingu sagðist svo konan skilja það ósköp vel að ég væri þreytt eftir allt þetta ferðalag mitt. Sjálf þyrfti hún að fara beint uppí næstu vél og fljúga enn meira....
..... Ég á neflilega heima á Egilsstöðum!!!!!!!!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?