<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

Á leigumarkaðinn 

Harpa sótti mig og mömmu í gær og fórum við í smá bíltúr.... að lokum stoppar Harpa fyrir framan gamalt og frekar hrörlegt hús í Brekkugötu. Við röltum inn og skoðum okkur um... skær grænar hurðar, skítur, ryk, flögnuð málning, naglar út um allt, brotnar gardínur, minnsta baðherbergi í heimi o.s.fr.v.
The fat lady sem á íbúðina ætlar að þrýfa herlegheitin, setja upp nýjar gardýnur og mála en ég og Harpa ætlum að mæta með draslið okkar, gera þetta ógeðslega huggulegt og setjast þarna að..... jájájá, þetta verður fjör :-)

föstudagur

Keilusíða 

Þóra er búin að verlsa sér eitt stykki íbúð og fór ég af því tilefni í heimsókn til kjellunnar í gær... ekkert smá æðisleg íbúð og núna hugsa ég ekki um annað en íbúðarkaup. Við stöllur áttum gott kvöld í gær og allt of langt síðan við höfum bara setið og kjaftað.... gaf henni líka æðislega innflutningsgjöf sem passar flott inní nýja heimilið hennar, Aussie í fyrirrúmi :-)

Annars stefndi allt í fríhelgi hjá mér.... er samt eitthvað vinnuóð og verð því að vinna fyrir Friðrik V á laugardaginn í einhverju brúðkaupi. Mæti kl. 15 og vinn til sennilega 04.... missi því líka af menningarvökunni hér á Akureyri!
Reyndar ætla ég að dröslast í klippingu á laugardaginn í tilefni þess að það er meira en ár liðið frá því ég gerði eitthvað annað en þvo og henda teygju í hárið á mér.... enda vel sjúskaðir hárlokkar. Svo er það brunch í Bakaríinu við Brúnna og Eygló kvödd!

miðvikudagur

Asmakast 

Stóð með Stjána, Baldri og Óla fyrir utan Nætursöluna á laugardagskvöldið og fylgdumst við með villtu næturlífi Akureyrarbæjar. Kristján fékk sér klassískan sveittan burger og erum við bara ógeðslega kúl þarna í næturkuldanum.... spjölluðum við hina og þessa sem áttu leið um Nætursöluna og allt í einu kemur kelling labbandi upp að okkur... hún var eins og klippt út úr melluhverfinu í Amsterdam, sjaldan séð jafn sjúskaða konu. Þarna kemur hún röltandi til okkar, horfir á mig og spyr hvort við eigum að finna okkur leigubíl!! Svo hóstar hún og andar eins og hún sé gjörsamlega að kafna.... mér leist ekkert á gang mála og hafnaði pent þessu boði. Þá ákveður hún að bjóða mér í pizzu og þessu boði fylgdi enn meiri ógeðishósti og ég var farin að hræðast þennan andadrátt.... nei vinan, en hvar fékkstu þessi stígvél... moohahahaha.
Þvílíkur viðbjóður og við vorum öll farin að halla okkur afturábak frá henni, en að lokum staulaðist hún hóstandi inní Nætursöluna til að finna einhvern í pizzupartýið sitt.

Gott að vita að maður á séns í stelpurnar... ;-)

mánudagur

Sumarið kvatt 

Mætt á stúkufund á mánudagsmorgni... ekki veitir af eftir átök föstudagsins.
Hittumst hjá banknum klukkan hálf sjö og hófst þá þessi líka skemmtilegi ratleikur sem endaði í dýrindis mat og bjór heima hjá Helga bankastjóra. Það þarf varla að taka það fram að mitt lið vann ratleikinn og komum við út í gróða... auðvitað snérist þetta allt saman um peninga og samningaviðræður. Vorum bara í bullinu langt fram eftir kvöldi en skelltum okkur svo á Amour og stigum þar sveittan dans fram eftir nóttu.... kom ekkert of seint heim og reif mig á fætur klukkan tíu til að kveðja Bjössa. Laugardagurinn var annars mjög rólegur en ég skellti mér í Hagkaup til að versla nammi fyrir peninginn sem við græddum í ratleiknum.... 50% afsláttur og gekk ég sæl út með troð fullan poka.
Mætti svo í vinnuna á laugardagskvöldið en stoppaði stutt þar sem við lokuðum snemma! Rölti þá yfir á Amour og ætlaði heldur betur að vera svöl... stillti mér upp við VIP svæðið og beið eftir sæta dyraverðinu sem hleypir mér alltaf inn. Nei nei, kauði var ekki að vinna heldur eitthvað steratröll sem harð neitaði að hleypa mér inn. Hitti Gylfa sem benti mér pent á að ég væri eins og klippt út úr A Night at the Roxbury..... ótrúlegt en satt þá hljómaði What is love með Haddaway á meðan ég var að reyna að komast inn VIP.... OK, var ógeðslega svalt.
Jæja, skellti mér í röðina og það var bara nokkuð góð stemmning.... hitti Kristján Sturlu, Baldur og Óla og ákvað að troða mér bara uppá þá þetta kvöld (vá hvað þetta hljómar eitthvað undarlega). Kristján fór á kostum eins og venjulega en var ekki að gúddera það þegar hann var spurður um skilríki.... mohahaha, bara flott. Gott kvöld þetta :-)

Þá er sumarið formlega búið.... Bjössinn farinn af landinu, búið að kveðja sumarstarfsfólkið og Menningarnótt búin. Þetta sökkar!!

miðvikudagur

Á skjánum birtast myndir... 

Skrokkurinn er að skríða saman eftir átök helgarinnar. Var reyndar í góðu yfirlæti útí sumarbústað langt fram á laugardag en svo var stefnan tekin á afmælisveislu til Eyglóar.... rúntaði fyrst með Bjössa í svona klukkutíma og tékkuðum við púlsinn á hverju partýinu af öðru. Komst loks í Norðurgötuna þar sem bollur dauðans biðu mín og runnu niður með nokkrum bjórum. Veit ekki hversu nákvæmlega ég á að lýsa þessari samkomu.... hún byrjaði rólega en endaði í miklum hasar þar sem Binni fékk útrás fyrir miklu líkamlegu ofbeldi og var ég fórnarlambið.... aðal partýlag kvöldsins var hjálparlagið "Sameinumst hjálpum þeim"..... Fékk hringingu þar sem æluhljóðin glumdu í símanum, næs..... Röltum í bæinn og sungum gjörning til Karenar og Grjóna á leiðinni (vöktum sennilega alla Eyrina með þessum óhljóðum).... Stefnan var tekin á Amour þar sem bjór og nauðgaralyf flæddu um allt.... kannski ofskynjunarlyf líka því eftir mínu besta minni var eitt stykki panda á svæðinu... var næstum því lamin á rölti mínu heim með Hauk og Einari, skemmtilegt!

Bollan, bjórinn og lyfin tóku svo völdin á líkamanum á sunnudaginn og var ég hin hressasta. Gísli Konráð og Elísa komu svo í heimsókn og ætti að krýna mig og Bjössa gestgjafa ársins.... fóru pakksödd og sæl frá okkur!!
Jammmm, framundan er kveðjuhóf í bankanum og er ég búin að redda fríi á Kaffi Ak til að vera hrókur alls fagnaðar á þeirri skemmtun.... svo er það vinna á laugardagskvöldið og engin menningarnótt þetta árið hjá mér. Er nú frekar svekkt þar sem Ála á afmæli á laugardaginn og menningarnótt klikkar aldrei......

Bjössi er svo að fara að yfirgefa mig enn eina ferðina um helgina, sumarið á enda og skólinn að byrja. Verð að skella mér í helgarferð til hans í vetur.... sjaldan upplifað jafn mikla snilld og þegar ég var hjá honum í vor :-)

föstudagur

Á leið í stúku 

Enn einn föstudagurinn og lífsklukkan tifar.... þakka nú fyrir það að vera ekki miðaldra kona á breytingaskeiðinu núna. Loftslagið í bankanum er með eindæmum ógeðslegt svo maður sé ekki að bæta óþarfa svitaköstum og skapvonsku ofaná það, aumingja kjellingarnar.
Svo ég haldi nú áfram að tala um þetta skemmtilíf í bankanum þá fékk ég í hendurnar svokallað Mitt kort áðan (bjó til þetta líka glæsilega kort með rokkaramynd af mér og Bjössa).... verð nú að viðurkenna að mér finnst við vera full glansandi á þessari mynd og varð fyrir pínu vonbrygðum. Annars er þetta ógeðslega kúl og hlakka ég til að nota þetta kort grimmt.

Gjaldkerastúkan bíður mín eftir helgi og ætla ég ekki að tjá mig neitt meira um það mál hér.... annars er sumarið á enda og er það veðrinu að þakka hve fáar brjóstahaldslausar jussur í stuttermabol hafa ráfað inní bankann þetta sumarið.

þriðjudagur

"Frændi" 

Þetta er nú bara algjör snilld :-)

... Allt stefnir í góða helgi þar sem nýja ættaróðalið verður vígt og svo afmælisveisla Eyglóar!!

miðvikudagur

Aldur er afstæður 

Já ég er veik.... búin að sofa síðan á sunnudagskvöldið þannig að ég er búin að afgreiða ágústskammtinn af svefni. Þetta er bara aumingjaskapur og ég ætla að drullast í vinnuna á morgun.

Verló var fín.... Myndatakan með Birni Jörundi og Bjössa stendur uppúr! Annars fór verló að mestu framhjá mér og mér svona líka nett sama.

Þegar ég var að fljúga heim frá Köben eftir ferðalag mitt frá Ástralíu sat ég við hliðina á miðaldra konu sem þurfti rosalega mikið að spjalla við mig. Segja mér hvað börnin hennar væru að gera og eitthvað bla bla.... ég brosti bara og reyndi að láta hana fatta að ég væri þreytt eftir mikið og langt ferðalag og nennti ekki að tala við hana, þannig að ég setti heyrnatólin á hausinn á mér og styllti tónlistina frekar hátt þannig að ég heyrði ekki í henni.... hún gafst ekki upp og byrjaði að pota í mig til að sýna mér einhvern hring og naglalakk sem hún hafði keypt sér, æðislegt. Þannig að ég byrjaði aðeins að tala við konuna, að lokum spurði hún hvað ég væri gömul.... 23 ára!! jájá, eru þá fædd 1982???? Var ekki lengi að segja bara já og setja heyrnatólin aftur á. Shit, á þessu augnabliki fór ég að hugsa að þessi kona byggi pottþétt á Akureyri og væri viðskiptavinur bankans og kæmi sennilega í bankann á hverjum degi og myndi tala við mig.... kæmist svo að því að ég væri ekkert 23 ára og það væri rosalegt. Hefði heldur ekki passað að ég hefði tekið mér ár frí eftir menntaskóla, væri búin með 3ggja ára háskólanám og hefði eytt heilum vetri í Ástralíu... já Kata, þetta eru svo sannarlega áhyggjur sem þú þarft að hafa.
Við lendingu sagðist svo konan skilja það ósköp vel að ég væri þreytt eftir allt þetta ferðalag mitt. Sjálf þyrfti hún að fara beint uppí næstu vél og fljúga enn meira....
..... Ég á neflilega heima á Egilsstöðum!!!!!!!!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?