<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

Kæra dagbók... 

Þetta eru nú búnir að vera ansi skemmtilegir dagar....
Eftir vinnu á föstudaginn hitti ég eftir allt of langan tíma Höllu frænku og kærastann Mads. Bjór á Amour en síðan heim í grill og spjall. Rifum okkur upp eld snemma á laugardagsmorguninn og skelltum okkur í Mývatnssveitina.... ég fór svo að vinna seinnipartinn og þau brunuðu aftur suður snemma á sunnudagsmorguninn. Það varð til þess að þau mættu ekki í teitið til Eyglóar á laugardagskvöldið og svo tókum við snilldar takta á Kaffi AK.... langt síðan ég hef djammað og skemmti mér ógeðslega vel!

Í gær var svo gæsunardagur.... Lóa kellingin er að fara að gifta sig eftir nokkra daga þannig að við ákváðum að gera eitthvað saman allar vinkonurnar. Byrjuðum á sjóstöng, tróðum okkur svo 10 stelpur í heita pottinn á Þelamörk (hann er ekki mikið stærri en baðkar) og enduðum á Hauganesi í grilli, spjalli og eintómri gleði. Persónulega þá borðaði ég stanslaust frá kl. 9 til hálf 3 en þá var ég alveg uppgefin af áti þannig að ég varð að fara að sofa... Heppnaðist ógeðslega vel og þetta var í fyrsta skiptið í mörg ár sem við vorum allar 11 komnar saman á einn stað :-)

Tók mér frí í vinnunum mínum í dag og notaði hann sem sumarfrí.... hef haft það ógeðslega gott út á palli og þetta var kærkomin hvíld.

Það er svo bara vinna alla helgina þannig að fjörið verður á Kaffi Ak eins og venjulega og svo eru alltaf nýjar myndir að bætast í albúmið mitt.... Sumarið 2005!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?