<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

It´s unbelievable 

Já kæra fólk, Lóa og Jóhann munu ganga í það heilaga á morgun..... guð minn góður. Finnst frekar ótrúlegt að vinkona mín sé að fara að gifta sig en þetta er ótrúlega spennandi og hlakka ég mikið til. Svo held ég í vonina um að einhverjir myndarlegir piparsveinar dúkki upp í þessu brúðkaupi.... er nú samt búin að komast að því af hverju ég á ekki kærasta og skýringin er einföld..... ég er þroskaheft.
En talandi um makaleit þá fékk ég sms um daginn þar sem ég var spurð hvort ég hefði áhuga á að taka þátt í bachelor!!!! Ég veit að ég er klikkuð og hef gert margt sjúkt í gegnum tíðina en svona geðveik er ég nú ekki.... en takk fyrir að hafa mig í huga!

Jæja..... hef nokkra klukkutíma til að skella mér í búðir og finna mér einhver föt til að klæðast í þessum merka viðburði á morgun. Hélt ég ætti kannski eitthvað en hlýrabolirnir (sem ég á meira en nóg af síðan ég var úti) og stuttbuxurnar munu held ég ekki slá í gegn í svona veislu.... sjáum til, sjáum til!!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?