fimmtudagur
Verslunarmannahelgin
Versló.....!!!! Það er nú ekki sem áður var þegar maður var ráfandi um götur bæjarins með vodka pelann í annarri og ofskynjunarlyfið í hinni, lá meðvitundarlaus í einhverju partýi þar sem fólk saug hverja línun á fætur annarri af klósettskálunum eða dröslandi ofurölvuðum og útúrtjúttúðum vinkonum heim af djamminu.... neinei, núna er það bara vinna og ef ég er ekki að vinna þá er ég sofandi. Mjög fjölbreytilegt líferni og ég væri að ljúga ef ég segði að ég væri ekki komin með ógeð. En þetta fylgir því víst að vera fullorðin..... djammhelgunum fækkar, vinkonurnar hætta að nenna að djamma þar sem þær eru komnar með krakka, áfengisþolið gjörsamlega í lágmarki og djammlöngunin ekki til staðar.....
Myndirnar sem ég sendi alla leið til Bandaríkjanna í útprentun, þar sem ég tými ekki að prenta þær út hér á landi, eru komnar úr tollinum og má ég búast við rauðklæddum manni við dyrnar hjá mér í kvöld með vænan pakka fullan af myndum :-)
Gleðilega verslunarmannahelgi og allir að drullast á Kaffi Ak um helgina....

þriðjudagur
Allir sögðu já
Eins og síðasta færsla gefur til kynna þá skemmtum við okkur óhemju vel um síðustu helgi.... Karen er með góða sögu af nakta manninum í næsta húsi og brúðkaupið var meiriháttar. Báðir aðilar sögðu já og frábært að sjá hvað Lóa og Jóhann er ástfangin :-) Eftir að hafa étið á okkur gat, hlegið mikið og kysst Jóhann eins mikið og mögulegt var, skelltum við okkur til Birnu þar sem ruglið hófst eins og myndirnar bera með sér sem ég er búin að henda inn..... myndirnar hennar Birnu eru líka komnar inn og eru hérna.
Takk fyrir yndislegann dag og massað kvöld allir :-)
Núna er það svo bara vinna og vinna.... djamm á föstudagskvöldið þar sem við munum tjútta við Ný Dönsk :-)

laugardagur
Er ég loðin undir höndunum Brynjar?
Brúðkaupið var algjör snilld og erum við gellur mættar í eintóma vitleysu heim til Birnu ofurtöffara. Birna mætti svona líka vel loðin undir höndunum í brúðkaupið og í raun hef ég ekki áhuga á að vita hvernig leggirnir líta út.... læt Tóta um það.
Eins og tíðkast í sönnum bandarískum brúðkaupum þá kastaði Lóa vendinum (sem var reyndar bara ein rós) og stökk ég þá af stað eins og óð manneskja til að grípa vöndinn (maður heldur enn í vonina um að ganga út). En allavega þá endaði þessi blómahending mjög vel þar sem ég náði ekki vendinum sjálfum heldur náði að höggva rósina í tvennt á mjög smekklegan hátt...... þannig að Guðbjörg náði hausnum en Líney stilknum..... niðurstaðan úr þessari dritun er sú að ég mun vera algjör hjónajöfull þeirra kvenna....!!!!!
Tja, annars eru allir í góðum gír... þau nýgiftu eru að reyna að búa til barn og við hin erum bara full. Birna er byrjuð að dreyfa Tequila um allt og svo er bara stefnan tekin á eintómt bull í kvöld......... jahaaaaaa
.....Myndir væntanlegar :-)

föstudagur
It´s unbelievable
Já kæra fólk, Lóa og Jóhann munu ganga í það heilaga á morgun..... guð minn góður. Finnst frekar ótrúlegt að vinkona mín sé að fara að gifta sig en þetta er ótrúlega spennandi og hlakka ég mikið til. Svo held ég í vonina um að einhverjir myndarlegir piparsveinar dúkki upp í þessu brúðkaupi.... er nú samt búin að komast að því af hverju ég á ekki kærasta og skýringin er einföld..... ég er þroskaheft.
En talandi um makaleit þá fékk ég sms um daginn þar sem ég var spurð hvort ég hefði áhuga á að taka þátt í bachelor!!!! Ég veit að ég er klikkuð og hef gert margt sjúkt í gegnum tíðina en svona geðveik er ég nú ekki.... en takk fyrir að hafa mig í huga!
Jæja..... hef nokkra klukkutíma til að skella mér í búðir og finna mér einhver föt til að klæðast í þessum merka viðburði á morgun. Hélt ég ætti kannski eitthvað en hlýrabolirnir (sem ég á meira en nóg af síðan ég var úti) og stuttbuxurnar munu held ég ekki slá í gegn í svona veislu.... sjáum til, sjáum til!!!

Flíspeysa og hor
Já ég er þreytt..... er orðið frekar krónískt held ég bara. Get nú ekki sagt að veðrið sé að hjálpa mér að við skríða undan heitri sænginni á morgnana. Grámyglan í hámarki og vetrarúlpan ekki enn komin ofaní kassa.... mun sennilega ekki fara þangað eftir allt saman.
... Náði að borða mig til máttleysis enn eina ferðina í gær.... afmælismatarboð hjá Guðbjörgu, næs!!
... Þurfti ekki að vinna á laugardagskvöldið eins og stóð til en ég fór nú samt á Kaffi Ak í smá stund til að tékka á stemmaranum.
... Rölti um með Slöngunni sem var með einhvern bakpoka fullann af fíkniefnum að hans sögn.
... Einhver dúddi reyndi að gera hosur sínar grænar fyrir mér en hætti við þar sem honum fannst ég vera of ör!! Sennilega full stór skammtur tekinn þetta kvöldið.
... Komst að því að ég þarf ekki að standa í röð til að komast inná Amour, gaman að því!
Vildi óska að ég væri að fara í skóla í haust.....

Dröslað á Esjuna
Vissi eiginlega ekki hvað á mig stóð veðrið þegar ég las Moggann í morgun.... Lamaður maður fer uppá Esjuna í hjólastól!! Það hlýtur að hafa verið rosa torfærustóll. Þegar ég skoðaði svo myndina sem fylgdi með fréttinni sá ég fatlaðan mann liggjandi á börum og sýndist sjá glitta í hjólastólinn þarna einhversstaðar..... Semsagt, björgunarsveitarmenn drösluðu lömuðum manni og hjólastólnum hans uppá Esjuna.
Svo sagði sá lamaði í viðtali að honum hefði aldrei tekist þetta án hjálpar......... Nú er það ekki???

miðvikudagur
Kæra dagbók...
Þetta eru nú búnir að vera ansi skemmtilegir dagar....
Eftir vinnu á föstudaginn hitti ég eftir allt of langan tíma Höllu frænku og kærastann Mads. Bjór á Amour en síðan heim í grill og spjall. Rifum okkur upp eld snemma á laugardagsmorguninn og skelltum okkur í Mývatnssveitina.... ég fór svo að vinna seinnipartinn og þau brunuðu aftur suður snemma á sunnudagsmorguninn. Það varð til þess að þau mættu ekki í teitið til Eyglóar á laugardagskvöldið og svo tókum við snilldar takta á Kaffi AK.... langt síðan ég hef djammað og skemmti mér ógeðslega vel!
Í gær var svo gæsunardagur.... Lóa kellingin er að fara að gifta sig eftir nokkra daga þannig að við ákváðum að gera eitthvað saman allar vinkonurnar. Byrjuðum á sjóstöng, tróðum okkur svo 10 stelpur í heita pottinn á Þelamörk (hann er ekki mikið stærri en baðkar) og enduðum á Hauganesi í grilli, spjalli og eintómri gleði. Persónulega þá borðaði ég stanslaust frá kl. 9 til hálf 3 en þá var ég alveg uppgefin af áti þannig að ég varð að fara að sofa... Heppnaðist ógeðslega vel og þetta var í fyrsta skiptið í mörg ár sem við vorum allar 11 komnar saman á einn stað :-)
Tók mér frí í vinnunum mínum í dag og notaði hann sem sumarfrí.... hef haft það ógeðslega gott út á palli og þetta var kærkomin hvíld.
Það er svo bara vinna alla helgina þannig að fjörið verður á Kaffi Ak eins og venjulega og svo eru alltaf nýjar myndir að bætast í albúmið mitt.... Sumarið 2005!!

Með gröft í augunum
Stefnir allt í góða helgi..... Karen og Líney ætla að bruna í bæinn í dag og Halla frænka ætlar að mæta á Norðurlandið ásamt blökkumanninum. Planið er að ræna lyklunum af Eygló og halda teiti í húsnæði hennar og Binna. Mér líður nú samt ekkert of vel í augnablikinu, eiginlega bara eins og fíkniefnaneytanda með fráhvarfseinkenni... sokkin augu, svita steypur, kulda köst og fleira huggulegt. Redda þessu um helgina með einn vænni línu í nebbann.
Annars var ég í mömmó í allan gærdag.... var á róló, horfði á Bangsimon, fór í kubbó, las og svæfði. Já maður er efnilegur!
Bleble og njótið helgarinnar :-)

16.júní
Birna kappi er búin að setja inn myndir frá ofurfjörinu á 16. júní og má sjá þær á þessari slóð:
http://photos.heremy.com/birnabald/
Svo er Simmi svali líka búinn að dúndra inn nokkrum myndum á síðuna sína og fær hann hér með tengil :-)
....margar hverjar eru ekki fyrir viðkvæmar sálir!!!

Hruninn heimur
.... sem betur fer er þessa blessaða sól farin að láta sjá sig.
.... Fyrsta vinkonubarnið er komið í heiminn. Þessi líka glæsilegi strákur hjá Jóhönnu og Nonna. Hinar stelpurnar strax byrjaðar að leggja í!!
.... Centro er farið að selja eins föt og ég verslaði mér í Aussie. Greit!!
.... Live8 tónleikarnir voru snilld og svaka comeback frá Pink Floyd.
.... Ég held að líkamann á mér þoli ekki meira pizzuát.
.... Var í 4 tíma í gær að sortera Ástralíumyndirnar og senda í framköllun. Er það nokkuð greinilegt að ég gæfi allt til að komast þangað aftur!!
...... Jamm þetta er sumarið sem Kata gerði ekki neitt!!