$BlogRSDUrl$>
sunnudagur
Næs
- Var ljúft að setjast á Amour eftir vinnu á föstudaginn og sötra bjór eftir ógeðslegan vinnudag.
- Vann á Kaffi Ak um kvöldið en var komin snemma heim þar sem mætingin var frekar dræm.
- Brunaði úr bænum með Bjössa á laugardaginn og heimsóttum við þau gömlu á nýja ættaróðalið í Aðardal. Vorum í góðu yfirlæti þar fram á kvöld en þá skelltum við okkur aftur í bæinn og ég fór að vinna.... Mun betri mæting þetta kvöldið og farið seinna að sofa.
- Eyddi deginum í dag á rölti og kjafti í Kjarna með vinkonunum, skelltum okkur svo í Brynju og nutum dagsins.... brilliant.
- Fór að vinna smá í kvöld og eyðilagði nokkrar pizzur.... jammm, litlan orðin pizzubakari á Kaffi Ak!
- Komst að því um helgina að mannkynið skiptist í tvo hópa: Þá sem þekkja mig og minn sjúka húmor og þá sem þekkja mig ekki neitt og telja mig vera illa þroskaheftan einstakling. Ég veit að ég er mjög misskilinn manneskja og er ég að hugsa um að halda því bara þannig.... heimurinn er of stór svo ég geti haldið öllum ánægðum!
- Er annars komin með hjartsláttatruflanir af ofáti og er að hugsa um að fara að æla....
